Peyronie´s sjúkdómur (induratio penis plastica, induratio plastica penis)
Almennt: nokkuð algengur og myndast hersli í reðurgroppuhýðinu (oftast baklægt) sem veldur síðan skekkju niður á við, til hliðar eða aftur á við. Fyrst lýst formlega af François de la Peyronie árið 1743, en fyrsta lýsingin er þekkt í bók Aranzi frá Bólogna, “Tumores praeter naturam” frá 1587. Algengast á aldrinum 40-60 ára með tíðni á bilinu 0.3-3% (sennilega algengara en skráð og breiðara aldursbil).
Einkenni: stundum bráðaeinkenni með verkjum, eymslum og þreifanlegu hersli sem síðan verður viðvarandi í mismiklu mæli. Ristruflun algeng, bæði sálræn og líffræðileg, ætíð limskekkja.
Lykilatriði! Reðurskekkja er feimnismál hjá sjúklingum og ber að nálgast með sérstakri nærgætni.
Greining: limskekkja við risframköllun, þreifanlegt hersli, muna eftir við ristruflun, sagan dæmigerð. Ómun eða segulómun möguleg til hjálpar (sjaldan þörf). Fylgni við lófakreppu Dupuytren´s og jafnvel iljarfellskreppu (Ledderhose´s sj.d.).
Meðfædd reðurskekkja (deviatio/curvatura penilis congenita, congenital penile curvature)
Reðurhúfustrengir (chordee) með eða án neðanrásar (hypospadias) eða skekkjur án annarra sjúklegra breytinga (t. d. strengja) þar sem limur bognar yfirleitt >30° í ákveðna stefnu.
Meðferð
Ráðleggingar
Meðferð fer eftir skekkjugráðu, einkennum við samfarir eða stinningu. Ætíð bíða (>3-6 mán.) með hugsanlega skurðaðgerð við Peyronie´s þar sem hluti jafnar sig bærilega án meðferðar. Meðfæddar skekkjur lagast ekki af sjálfu sér.
Lyfjameðferð
Margir lyfjaflokkar verið reyndir (töflur, krem, smyrsli, innsprautun), en árangur sannanlega lítill eða enginn.
Skurðaðgerð
Yfirleitt ekki beitt nema ástandið hái sjúklingi verulega og/eða skekkjan reynist a. m. k. 30° og ástandið stöðugt og alls ekki versnandi. Sjúklingar þurfa að forðast samfarir og sjálfsfróun eftir aðgerð í tiltekinn tíma (3-6 vikur).
Ebbehöj; faldsaumur í reðurgroppuhýðið andspænis sveigjunni (corporoplasty).
Nesbit; fleygar teknir úr reðurgroppu og síðan lokað með saumi.
Reðurstólpar (penile prosthesis, penis prótesur); lokaúrræðið.
ESWL: bylgjumeðferð á herslið, á tilraunastigi, óvíst með árangur.