
Rafkver Vals um þvagfærasjúkdóma er
vefrit,
sem
annars vegar og
aðallega ætlað
heilbrigðisstarfsfólki (fagfólki),
en
almenningi (leikmönnum)
hins vegar. Markmiðið er að hver og einn geti fengið
grunnupplýsingar um algengustu
góðkynja sjúkdóma sem fengist er
við innan þvagfæraskurðlækninga, en efni um
krabbamein í þvagfærum hefir verið bætt
á síðuna.
Þvagfæraskurðlækningar (enska:
urology,
norræna: urologi,
urologia) er sú
fræðigrein er fæst við sjúkdóma innan þvag- og kynfæra hjá
körlum og konum. Má þar nefna sjúkdóma í nýrum, þvagblöðru,
blöðruhálskirtli (hvekk), þvagrás, reðri, forhúð og eistum
auk legganga og skeiðar.
Efnisvalið
ræðst nokkuð af
starfsvettvangi og áhugasviðum höfundar. Leiðréttingar og
ábendingar eru vel þegnar, en ekki
þýðir að deila um smekk.
Notkun á innihaldi heimasíðunnar er öllum einstaklingum
heimil, en vinsamlegast getið uppruna ef nýta skal efnið
til kennslu eða þess háttar, þar sem höfundarréttur er til
staðar.
Minna skal á að læknisfræði getur eins og matargerð verið
ótrygg vísindi.