Orka

Í bók Viktoriu Moran, "Fegraðu líf þitt" er að finna eftir farandi texta;

„Hlustaðu á náttúruna.
Lærðu að meta fegurð.
Virtu hugboð þín varðandi
liti, munstur og form.
Skapaðu umhverfi sem
laðar að hamingju og gæfu“

En hvaða litir laða að sér hamingju og gæfu ? Það sem einn litur táknar í einu samfélagi getur verið þveröfugt við það sem hann táknar í öðru samfélagi, kínverjar líta til dæmis á rauða litinn sem gæfumerki en í kristni táknar hann þjáningu Krists. Rauður litur er talinn örvandi litur, merkir viljastyrk, lífsgleði, hreysti, raunsæi og lífsorku. Rauður litur táknar líka blóð og hættu. Ef við bætum við appelsínugulum lit sem er talinn jákvæður litur, enda litur sólarinnar, táknar gleði, sjálfstæði, djúpt innsæi og alsælu og kryddum með bleikum lit umhyggju, samúðar og skilyrðislausar ástar. Er ég þá komin með verk fullt af orku, gleði og ást, eða verk sem táknar blóð, alsælu og fórnfýsi ?

mariavals@internet.is - Sími: 663 2919