Öskudagur 2010
Öskudagur 2010
Kærar þakkir fyrir komuna til okkar á öskudaginn.
Hér eru myndirnar sem við tókum og greinilegt að fjörið var mikið. Við tókum myndir af rúmlega 500 börnum og mjög ánægjulegt að fá tækifæri til að gefa ykkur flottar myndir af þessum skemmtilegu krökkum.
Allir sem komu til okkar fá eina FRÍA mynd í stærðinni 13x18 og verður hún tilbúin miðvikudaginn 24. febrúar.
Við eigum úrval fallegra myndaramma og rétt að skella þessum líka flottu myndum beint uppá vegg heima. Að sjálfsögðu er hægt að panta fleiri myndir og í hvaða stærðum sem er og jafnvel skella á striga.
Við minnum á sérstakt tilboð á myndatökum í tengslum við öskudaginn þar sem við veitum 33% afslátt af gildandi verðskrá á myndatökum eða 30 mín myndataka á aðeins 9.900 í stað 14.900. Myndatakan þarf að fara fram frá 17 febrúar - 12 mars 2010. Hægt er að mynda hvað sem er, alla fjölskylduna, börnin eða jafnvel bara voffann :)
Við hlökkum til að sjá ykkur sem flest - Fallegar myndir er okkur ómetanlegar minningar.
Bestu kveðjur
Gunnar Leifur Jónasson, ljósmyndari
>>