tenglar |

|
Miðstöð fyrir íslenska myndlist.
www.cia.is |

|
SÍM
Samband íslenskra myndlistarmanna (SÍM) var stofnað árið 1982. SÍM er hagsmuna- og stéttarfélag liðlega 600 starfandi myndlistarmanna. SÍM samanstendur af eftirtöldum aðildarfélögum og félagsmönnum þeirra ásamt félögum með einstaklingsaðild að SÍM:
Félagi íslenskra myndlistarmanna (FÍM), Íslenskri grafík, Leirlistarfélaginu, Myndhöggvarafélaginum í Reykjavík (MHR) og Textílfélaginu.
www.sim.is
|
 |
Markmið HANDVERKS OG HÖNNUNAR
Samþykkt á stofnfundi þann 18. janúar 2007
Að stuðla að eflingu handverks, hönnunar og listiðnaðar og auka gæðavitund á þessu sviði.
Að auka skilning almennt á menningarlegu, listrænu og hagnýtu gildi handverks, hönnunar og listiðnaðar með fjölbreyttri kynningarstarfsemi.Að koma til móts við þarfir þessara greina fyrir þjónustu, ráðgjöf og upplýsingar.
Að halda áfram uppbyggingu gagnagrunns á þessu sviði.
Að vera sameiginlegur vettvangur þeirra sem starfa að handverki, hönnun og listiðnaði.
www.handverkoghonnun.is |
 |
Nýlistasafnið
Nýlistasafnið var stofnað árið 1978. Það er sjálfseignarstofnun, rekin af samtökum listamanna sem heitir Félag Nýlistasafnsins en að þessu leyti hefur safnið algera sérstöðu sem menningarstofnun á Íslandi. Í félaginu eru núna u.þ.b.180 félagar. Ár hvert er kosin fimm manna stjórn fyrir safnið sem sé um rekstur þess og leggur línur varðandi sýningarhald. Nýverið flutti safnið starfsemi sína í 500 fm leiguhúsnæði að Laugavegi 26 og heldur þar úti reglulegu sýningarhaldi. Starfsmenn safnsins eru tveir.
www.nylo.is |
|
Northern fibre, www.northernfibre.net
Northern Fibre er haldið annaðhvert ár. Þá kemur textíllistafólk frá Norðurlöndunum saman og heldur sýningu og námskeið. Á heimasíðu þeirra er hægt að fá ýtarlegar upplýsingar um atburðina. |

|
IAMPA, The International Association of Hand Papermakers and Paper Artists
Aljóðleg samtök pappírsgerðarmanna og listamannna.
www.iapma.info
|
|