|
Á
fundi mánudaginn 6.
október
sl. var á
þjálfunardagskrá
fræðsla/vinnustofa
um
hæfnismat
18. október 2008 var
Jóra gestgjafadeild
á ráðsfundi sem haldinn verður í
Þrastalundi við Sogið, frá kl.11:00-18:00
sjá dagskrárdrög hér.
Hinn
árlegi ræðukeppnifundur Jóru var mánudaginn
7.
apríl 2008
Keppendur
voru 7 og komu dómarar frá ITC Hörpu,
Reykjavík og frá Stjörnu, Rangárþingi
Allir
keppendur fengu rós og viðurkenningarskjal og
vinningshafinn, Sigríður Pálsdóttir
fékk
að auki nýju POWERtalk
ræðukeppninæluna.
*
* * * * * * * * *
* * * * * * * * * * * * * * *
Aukafundur:
Mælsku-
og rökræðukeppni var haldinn í Selinu,
þriðjudaginn 26. febrúar þegar ITC Fífa,
Kópavogi sótti Jóru heim. í örstuttu
máli sigraði Jóra keppnina þar
sem samþykkt var tillaga Jóru um að í
grunnskólum landsins verði kennd pólska í
stað dönsku,
og mun mæta Melkorku í úrslitum á
ráðsfundi 8. mars.
*************************
Ertu með
sviðsskrekk?
Við getum hjálpað…
Fræðslu-
og kynningarfundur var haldinn mánudaginn 21.
janúar
2008 kl. 20:00 í Selinu
Engjavegi 44,
Selfossi. Þar var ítarleg kynning á
fyrsta hluta nýs námskeiðs um ræðumennsku.
Nánari
upplýsingar um námskeiðið hér
Afmælisfundur
var 19. nóvember 2007 í safnaðarheimili
Selfosskirkju. Það var opið hús og
heiðursgestur var Margrét Katrín
Erlingsdóttir, bæjarfulltrúi í Árborg
og fyrsti forseti Jóru. Meðal annarra gesta var
bæjarstjóri Árborgar, Ragnheiður
Hergeirsdóttir, landsforseti ITC, Ásthildur
Sigurðardóttir og fjöldi annarra gesta bæði frá
öðrum ITC deildum og fyrrverandi félagar.
Kaffiveitingar eins og Jórum einum er
lagið - hlaðborð sem svignaði undan kræsingum.
Mánudaginn
2. apríl - kosning
stjórnar fyrir næsta
starfsár.
Á þjálfunardagskrá
voru fluttir tveir ísbrjótar.
Mánudaginn
16. apríl - venjulegur
fundur
Mánudaginn
19. mars - einsktaklings-ræðukeppni
í deild vinningshafinn keppir á Landsþingi ITC 4.
maí nk.
Mánudaginn
5. mars - ritkeppni Freyjunnar - 200 orða smásögur
Mánudaginn
19. febrúar - fræðsla um ræðumennsku
5. febrúar
var á þjálfunardagskrá
borðtjáning og hæfnismat.
Bókakynning
var á fyrsta fundi nýja ársins, mánudaginn
8. janúar 2007. Var það súpufundur haldinn
í Kaffi krús, Selfossi.
Jólafundur
var haldinn í Þrastalundi mánudaginn 11.
desember 2006 og var mest grín og glens á dagskrá.
Mánudaginn
20. nóvember
og var þemafundur. Þema fundarins var karlmenn.
6.
nóvember sl. var bíófundur, sem
þýðir að Jórur voru búnar að
fara í bíó og á
þjálfunardagskrá fundarins var krufin
bíómyndin "Mýrin"
Kynningarfundur
var haldinn 2. október sl.
18. september var á dagskrá
fræðsla um raddbeitingu. Teknir voru inn 2 nýir
félagar, sem er alltaf ánægjuleg uppákoma.
Fyrsti
fundur
haustsins var haldinn 4. september sl. á dagskrá voru
hringborðsumræður um vetrarstarfið framundan.
Jóra
var gestgjafadeild á
landsþingi sem var haldið að Hótel
Örk, Hveragerði 5.-6. maí 2006 myndir
Við
héldum
fund með ITC Stjörnu miðvikudaginn 26. apríl s.l.
að Hvoli, Hvolsvelli. Fundurinn var
hattafundur, þar sem mælst var til að allir
fundargestir bæru einhvers konar höfuðföt. (myndir)Var þetta skemmtilegur fundur
og var ákveðið að taka áskorun ITC
Írisar að halda sameiginlegan vorfund.
<>Á
ráðsfundi I. ráðs sem var 18.
mars í
Kríunesi við Elliðavatn kepptum við Jórur
í úrslitum hinnar
árlegu M&R keppni milli deilda við ITC
Hörpu, Reykjavík. Ræðuefnið var: ITC Harpa
leggur til að
fjölkvæni og fjölveri verði leyft á
Íslandi. ITC Jóra mælti gegn
tillögunni. Þetta
var spennandi keppni en Harpan var hlutskarpari og átti einnig
ræðumann dagsins Ingibjörgu Vigfúsdóttur.
-----------------------------------
Við
Jórur fórum í bíó þann 1. mars
s.l. og sáum: Brokeback Mountain,
sem er virkilega góð mynd og
líklega það óvenjuleg amerísk
bíómynd að Ameríkanarnir gátu ekki
veitt henni Oscar þó hún ætti það
fyllilega skilið. Á næsta reglulega fundi á
eftir, eða 6. mars voru
umræður og dómar um myndina. Stef
fundarins var: Engin
verður
skækja af eins manns völdum.
---------------------------------
Ræðukeppnisfundur
var 20. febrúar 2006 - hin árlega
ræðukeppni
haldin í deild. Eftir spennandi
ræðukeppni fjögurra ræðusnillinga varð
sigurvegari Guðlaug Jóna Hilmarsdóttir. Við
óskum henni til hamingju með árangurinn! Hún
keppti við sigurvegara úr öllum deildum í
ræðukeppni á Landsþingi ITC sem
verður
haldið á Hótel Örk í Hveragerði 5.
- 6. maí 2006.
------------------------------------------
Kynningarfundur
var haldinn mánudaginn 6.
febrúar 2006. Á
dagskrá
var fræðsla um ræðumennsku og framkomu
í ræðustól, kaffiveitingar voru í
fundahléi.
Fundur var hjá ITC Jóru
mánudaginn 16. janúar. Á dagskrá voru
pallborðsumræður um
efri árin. Voru skemmtilegar
umræður, þar sem fram komu ýmsir
vinklar á efninu.
Fyrsti fundur á nýja árinu
var laugardaginn 7. janúar 2006. og var dagskrá
fundarins á
svipuðum nótum og undanfarin
ár; léttur
hádegisverður með bókakynningu.
Jólafundurinn var hefðbundinn matarfundur og
var haldinn 15. des. 2005.
Svokölluð UGLUKEPPNI var á
fundi hjá ITC Jóru þann 5. des. 2005. En
þá taka allir þátt í
óundirbúnum ræðum um útdregið efni
í 1-2 mínútur og kosið um besta
ræðumanninn sem hlýtur faranduglu að launum til
varðveislu í 1 ár. Ugluna að þessu sinni
hlaut Helena Þráinsdóttir.
Á fundi hjá ITC Jóru þann 21.
nóvember 2005. var mælsku- og
rökræðukeppni þar sem keppnislið Jóru
keppti við lið ITC Korpu, Mosfellsbæ á venjulegum
fundastað í
Selinu, Engjavegi 44, Selfossi. Keppnin fór þannig að
Jóra fór með sigur af hólmi.
Í sömu vikunni kepptu ITC deildin Melkorka Rvk. og ITC
Fífa Kóp. sín á milli í
þeirri keppni fór ITC Fífa með sigur.
Næstu keppnir í M&R verða eftir
áramót.
Kynningarfundur
ITC deildarinnar Jóru var mánudaginn 17.
október 2005, en fundir hjá ITC Jóru eru allir
opnir og
gestir ávallt velkomnir.
|