|
ITC Jóra var
stofnuð 23. nóvember 1992
Í Jóru hafa yfir 70 einstaklingar í gegnum árin fengið margs konar þjálfun og eflt sjálfstraustið sem hefur orðið þeim til framfara í leik og starfi. Deildin
fundar í
Selinu, Engjavegi 44, Selfossi, 1. og 3. mánudag hvers
mánaðar, frá kl.
20:00-22:00. Fundirnir eru öllum opnir og gestir velkomnir án allra kvaða. Starfsárið nær frá september til loka maí.
Fundir í Jóru Fundir skiptast í félagsmálahluta annars vegar, sem veitir þjálfun í fundarsköpum og fundarstjórn og hins vegar þjálfundardagskrá þar sem félagar flytja undirbúin eða óundirbúin verkefni af ýmsum toga, oftast á léttum nótum. Þó fá aðilar mis krefjandi verkefni, allt eftir getu og vilja hvers og eins. Verkefnum er úthlutað á fundum fyrir næsta fund, þannig að 2 vikur eru yfirleitt til að undirbúa úthlutuð verkefni, sem geta verið allt frá ljóðaflutningi eða tímavörslu til frumsaminnar ræðu eða stjórnun á hluta af fundinum. Nýliðar Við inngöngu fá nýliðar afhenta Handbók með ítarlegum leiðbeiningum og góðum ráðum um helstu verkefni. Lögð er áhersla á að hver og einn fari í gegnum þjálfunina á sínum hraða og ekki er lagt hart að þeim sem ekki vilja fara geyst í sakirnar. Nýliðum er við inngöngu í Jóru skipaður sérstakur stuðningsmaður til aðstoðar við verkefni og slíkt, en stuðningsmaður er eins konar handleiðari. Stjórn og nefndir Ný stjórn er kosin árlega, en stór hluti af þjálfun í Jóru felst í því að gegna stjórnunarstöðum. Allir félagar eru í föstum nefndum og auk þess eru aðilar í stjórnun og nefndum á efri stigum samtakanna.
Að sjálfsögðu
erum við stöðugt að læra í samtökum
POWERtalk International, en
hver
og einn ræður hraða þjálfunarinnar og
hvaða stefnu hann vill taka, því þetta byggir
á sjálfsnámi og jákvæðu
hæfnismati. Námsefni POWERtalk
International, er samið
og
uppfært reglulega af færum leiðbeinendum um
víða veröld.
Hér er tekið dæmi um Raddþjálfun: Góð
rödd er
ávöxtur þjálfunar. Reglulegar æfingar,
daglegar upphitunaræfingar og vandleg umhirða á að
vera hluti af heilbrigðu líferni. Ljóðalestur
eða lestur óbundins máls er upplagt verkefni á
deildarfundum. Lesið gjarnan inn á segulband og hlustið
síðan á upptökuna til þess að
fá betri hugmynd um hvernig rödd ykkar hljómar
Þú hefur alla möguleika á að þróa áhrifaríka rödd. Fyrsta skrefið í þeirri þróun er skilningur. Þú átt að stefna að því að þróa rödd með þægilegan hljóm og nógu margbreytilegan, til að hún verði áhrifaríkur þáttur í ræðu þinni. Tvísmelltu á mynd: ![]() Góð rödd Ef þú hefur
meginreglurnar hér á undan að leiðarljósi,
muntu komast að því, að góð rödd
hefur yfirleitt eftirfarandi einkenni.
1.
Hljómurinn er þægilegur og felur í
sér vinsemd og hlýju.
2. Röddin er eðlileg og varpar ljósi á persónuleika og einlægni ræðumanns. 3. Röddin er lífleg og gefur þannig í skyn bæði styrk og þrótt, jafnvel þótt hún sé ekkert sérstaklega há. 4. Hún dregur upp mynd af blæbrigðum textans, er hvorki eintóna né tilfinningalaus. 5. Hún heyrist auðveldlega, vegna þess að hún er rétt stillt og framburður skýr. Þú getur æft þig og náð framúrskarandi árangri á öllum þessum sviðum, ef þú hlustar grannt eftir því, hvernig þú talar og einbeitir þér að því að bæta þig. Efnisval Veldu efni sem býður upp á fjölbreytni í raddbeitingu, t.d. er hægt að hefja þjálfunina á barnaævintýri og taka síðan ljóð og erfiðasta prófið hlýtur að vera að lesa upp úr símaskránni á þann hátt að veki áhuga. |
|
Falli atkvæði um tillögu jafnt, telst hún fallin. Þurfi tillaga bara einfaldan meirihluta atkvæða má forseti telja sitt atkvæði með eða á móti.
Við tillögu sem felur í sér fjárútlát, t.d. félagsgjöld, skal alltaf bera upp hæstu töluna fyrst, hvernig svo sem tillögurnar hljóða að öðru leyti.
Þegar tillaga hefur verið borin upp og stuðningsmaður er kominn og fundurinn er farinn að fjalla um hana telst hún eign fundarins. Ef flutningsmaður óskar eftir að draga hana til baka þarf að greiða um flað atkvæði.
Ef óskað er eftir endurflutningi á tillögu sem hefur verið felld, má ekki gera það á sama fundi.
Forgangstillögur lúta allar að fundinum, svo sem dagskrártillögur, frávísunartillögur, o.s.frv. og þær ber að afgreiða fyrstar.
Aldrei má grípa fram í fyrir ræðumanni, nema ef um réttarspurn eða réttartillögu er að ræða, svo sem: “Forseti, ég legg til að flutningsmaður verði látinn flytja mál sitt úr ræðustól svo fundarmenn heyri betur til hans”.
Stuðningsmaður: Tillaga þarf stuðningsmann til að vera umræðuhæf. Stuðningsmaður þarf ekki að vera samþykkur tillögunni. Hann opnar bara umræður um tillöguna.