Jórunn hét
stúlka ein; hún var bóndadóttir einhvers
staðar úr Sandvíkurhrepp í Flóanum; ung
var hún og efnileg, en heldur þótti hún
skapstór. Hún var matselja hjá föður
sínum. Einhvern dag bar svo við, að hestaat var
haldið skammt frá bæ Jórunnar; átti
faðir hennar annan hestinn, er etja skyldi, og hafði
Jórunn miklar mætur á honum. Hún var
viðstödd hestaatið og fleiri konur; en er atið
byrjaði, sá hún, að hestur föður hennar
fór heldur halloka fyrir. Varð Jórunn svo æf
við það og tryllt, að hún óð að
hinum hestinum og reif undan honum lærið; hljóp
hún þegar með það, svo ekki festi hönd
á henni, upp að Ölfusá hjá Laxfossi,
þreif þar upp bjarg eitt mikið úr hömrunum
við ána og kastaði því nálega
út á miðja á; síðan hljóp
hún yfir á stillum þessum og mælti um
leið:
- "Mátulegt er meyjarstig;
- mál mun vera að gifta sig."
Heitir þar síðan Tröllkonuhlaup,
aðrir segja Jóruhlaup. Þar hélt hún upp
Ölfus, austan undir Ingólfsfjalli, og upp í
Grafning, uns hún kom að hamragili því, sem
liggur vestur úr Grafningi, skammt frá Nesjum; eftir
því fór hún og linnti ekki á, fyrr en
hún kom upp í Hengil. Þar tók hún
sér bólfestu, og er þar síðan
kallaður Jóruhellir, og varð versta tröll og
grandaði bæði mönnum og málleysingjum.
Þegar Jóra var sest að í
Henglinum, var það siður hennar, að hún gekk
upp á hnjúk einn í Henglafjöllum og sat
löngum þar, sem síðan heitir
Jórusöðull; er hann skammt frá
sjónarhól hennar á háfjallinu. Af
sjónarhól skyggndist hún um eftir
ferðamönnum, sem um veginn fóru, bæði um
Grafning fyrir vestan Þingvallavatn og um Dyraveg norðan
undir Henglinum, sem liggur skammt frá hamragili
því, sem áður er nefnt og heitir enn í
dag Jórukleif, af því Jórunn lá
þar oft fyrir ferðamönnum til að ræna
þá eða drepa, eftir það hún var
búin með hestlærið. Þar með
gjörðist hún svo ill og hamrömm, að hún
eyddi byggðina í nánd við sig, en vegirnir
lögðust af. Þótti byggðamönnum svo
mikið mein að þessari óvætt, að
þeir gjörðu mannsöfnuð til að
ráða hana af dögum; en engu fengu þeir
áorkað að heldur.
Nú, þegar í þessi
vandræði var komið og engin ráð fengust til
að vinna Jóru, því svo var hún
kölluð, eftir það hún trylltist, né
heldur til að stökkva henni á burtu, varð til ungur
maður einn, sem var í förum landa á milli og var
um vetur í Noregi. Hann gekk fyrir konung einn dag og sagði
honum frá meinvætti þessum, sem í Henglinum
byggi, og bað konung kenna sér ráð til að
ráða tröllið af dögum. Konungur segir, að
hann skuli fara að Jóru um sólaruppkomu á
hvítasunnumorgun, "því ekki er svo vond
vættur né svo hamrammt tröll til, að ekki sofi
það þá," segir konungur. "Muntu þá
koma að Jóru sofandi, og mun hún liggja á
grúfu. Er hér öxi, er ég vil gefa
þér," segir konungur og fékk honum um leið
öxi silfurrekna; "og skaltu höggva henni milli herða
tröllsins. Mun þá Jóra vakna, er hún
kennir sársaukans, snúa sér við og segja:
"Verði hendur við skaft fastar." Þá skaltu segja:
"Losni þá öxin af skaftinu." Mun hvort tveggja
verða að áhrínsorðum, og mun Jóra
velta sér niður í vatn það, sem þar
er ekki langt frá, er hún liggur í
Jórukleif, með axarblaðið milli herðanna. Mun
axarblaðið síðan reka upp í á
þá, sem við hana mun kennd verða; þar munu
Íslendingar síðan velja sér
þingstað." Svo mælti konungur; en maðurinn
þakkaði honum ráðin og axargjöfina.
Fór hann síðan út til Íslands og
fór að öllu sem konungur hafði fyrir hann lagt og
banaði Jóru. Rættist öll spá konungs, og
rak axarblaðið í á þá, sem
síðan heitir Öxará, þar sem
Íslendingar settu alþing sitt.
Úr þjóðsögum
Jóns Árnasonar