|
Alþjóðlega barnahjálpin |
|
Styrktarforeldri Styrktarforeldrar ICC eru að breyta draumum í veruleika á hverjum degi. Með því að taka að þér barn í barnaþorpum ICC ert þú að búa munaðarlausu eða yfirgefnu barni framtíð sem það hefði aðeins geta dreymt um. Börnin okkar í Kongó eru í sérstakri þörf fyrir styrktarforeldra. Ástandið í þessu stríðsþjáða landi hefur ekki síst komið niður á börnunum og stutt ævi þessara barna er litað af mikilli sorg og þjáningu. Það er heiður að fá að taka þátt í því að snúa lífi þeirra til hins betra og gefa þeim það sem þau þarfnast, heimili, fjölskyldu, menntun, kærleika og von. Styrktarforeldra vantar fyrir börn í Kongó. Mánaðarlegur greiðslur er frá 3.600 kr.
Hafðu samband á netfang okkar icc@internet.is til að skrá þig sem styrktarforeldri og/eða fá nánari upplýsingar.
|
Tenglar barnahjálparinnar í öðrum löndum.
|
|
Alþjóðlega barnahjálpin - icc@internet.is |