|
Alþjóðlega barnahjálpin |
|
Alþjóðlega barnahjálpin, ICC, starfrækir barnaþorp í 18 löndum. Þessi lönd eru: Brasilía, Ekúador, Kambódía, Kongó, Kólumbía, Kosta Ríka, Dómeníska lýðveldið, Gvatemala, Gana, Indland, Mexíkó, Myanmar, Nígaragúa, Filipseyjar, Rúmenía, Sambía, Sri Lanka og Tæland. Þá eru svokölluð stuðningslönd aðallega í N-Ameríku, Evrópu og Ástralíu. Ísland er eitt þeirra. Alþjóðlega barnahjálpin á Íslandi er styrktarland barnaþorpana í Rúmeníu og A-Kongó. Kongó Í barnaþorpi ICC í A-Kongó eru nú 150 börn í umsjón okkar. Þessi börn urðu munaðarlaus í kjölfar borgarastyrjaldar þar í landi. Þrátt fyrir að formlega sé borgarastyrjöldinni lokið ráfa uppreisnarhópar og vopnaðar sveitir um landið, sem viðheldur óstöðuleika og erfiðar uppbyggingu í þessu fátæka ríki. Börnin í Patmos Island barnaþorpinu er þrátt fyrir erfiða minningar og mikinn missi á sinni stuttu ævi lífglöð og heilbrigð. Þau elska að syngja og spila fótbolta og aðra leiki. Börnunum gengur almennt vel í skólanum og þrjú þeirra eru nú í framhaldsnámi. Í barnaþorpinu er búið að byggja 8 heimili, auk þess sem nokkur bráðarbirgðarhúsnæði eru í notkun. Þar er einnig barnaskóli og verið er að reisa gagnfræðiskóla. Þessir skólar nýtast bæði börnunum í umsjón ICC og öðrum börnum í nágrenninu. Aðkallandi verkefni Mikil þörf er á fleirri styrktar- og þorpsforeldrum fyrir þetta verkefni Verið er að reisa gagnfræðiskóla í þorpinu. Í nóvember 2009 var fyrri áfangi skólans tekin í notkun en enn vantar fjármagn til að ljóka byggingu skólans. Rúmenía Árið 1991 hóf ICC starfsemi í Rúmeníu. Í fyrstu var unnið með bágstöddum börnum og fjölskyldum þeirra en 6 árum seinna breyttust áherslur starfsins og við fórum að taka að okkur munaðarlaus og yfirgefin börn. Í kjölfarið báðu stjórnvöld ICC um að taka að sér fleiri börn og ákveðið var að setja upp barnaþorp. Bygging fyrsta heimilisins hófst í júlí 2002. Nú hafa risið 3 heimili í barnaþorpinu. Í þorpinu búa nú 27 börn en áætlað er að þar rísi alls 10 hús sem rúmar um 100 börn. Unnið hefur verið að því í Rúmeníu hörðum höndum að gera barnaþorpið sem mest sjálfu sér nóg varðandi peninga og matvæli. Þetta hefur verið gert með því að auka við jarðrækt og reisa gróðurhús á svæðinu. Gróðurhúsið var tekið í notkun árið 2008 og hefur sannreynt sig sem góðan kost fyrir barnaþorpið. Þá er verið að reisa brauðgerð sem mun sjá barnaþorpinu og nágrannarþorpum og bæjum fyrir brauði. Helstu verkefni Brauðgerð í smíðum, vantar fé til að klára. |
Tenglar barnahjálparinnar í öðrum löndum.
|
|
Alþjóðlega barnahjálpin - icc@internet.is |