|
Alþjóðlega barnahjálpin |
|
2012
1.tbl. 2012
Kæri stuðningsaðili ICC, Við óskum þér og þínum gleðilegs nýss árs og þökkum stuðninginn og samstarfið á árinu sem er að líða. Nýjustu netfréttir okkar fylgja hér með. Vonumst til að sjá ykkur öll á félagsvistar- og spilakvöldinu laugardaginn 21. janúarJ Kær kveðja, Sóley, Sigurbjörg, Sigurborg og Þóra Lilja Stjórn Alþjóðlegu barnahjálparinnar Félagsvist/Spilakvöld laugardaginn 21. janúar kl. 20 Endilega takið laugardagskvöldið 21. janúar frá. Þá ætlum við að spila og hafa það gaman saman í Suðurhlíðarskóla, Suðurhlíð 36 kl. 20:00. Við héldum samskonar kvöld í fyrra við góðar undirtektir og vonum að við sjáum jafnvel enn fleiri nú. Verðlaun eru í boði. Ágóði kvöldsins rennur til barnaþorpsins okkar í Kongó. Fyrsti „flöskudagur“ ársins helgaður barnaþorpinu í Kongó Hafa flöskur og dósir safnast upp hjá ykkur yfir hátíðirnar. Af hverju ekki að láta börnin í barnaþorpinu okkar í Kongó njóta góðs af því? Fyrsti flöskudagur ársins verður 29. janúar. Endilega komið flöskum og dósum til Þóru Lilju (sími 822-4931 og netfang: icc@internet.is) fyrir þann tíma. Við bendum líka á að nokkrir eru þegar komnir í áskrift hjá okkur og gefa reglulega tómar flöskur til starfs okkar. Ef þú vilt vera í þeim hópi láttu okkur þá vita. Margt smátt gerir nefnilega eitt RISA stórt! Nýjar myndir frá Kongó
Nýársdagur er góður dagur í barnaþorpinu í Kongó Þann 1. janúar halda börnin og starfsmenn barnaþorpsins í Kongó ekki aðeins upp á að nýtt ár er komið heldur eiga fjöldi barna í þorpinu afmæli þennan dag. Þetta er engin tilviljun og ekki komið af góðu eins og sést af þessari frétt sem var lauslega þýdd úr fréttablaðið ICC í Bandaríkjunum sem kom út í síðustu viku:
Fyrir nokkrum árum stóð Desire, yfirmaður ICC í Kongó, frammi fyrir því erfiða verkefni að reyna að bjarga lífi hundruða munaðarlausra barna sem voru fórnarlömb borgarastyrjaldarinnar þar í landi. Stuðningur styrktaraðila ICC gerði það mögulegt fyrir Desire að hlúa að þessum börnum, koma þeim aftur til heilsu og finna þeim samanstað. Desire mætti fleiri vandamálum þegar að hann fór að vinna í því að fá öll börnin löglega skráð hjá yfirvöldum. Mjög litlar upplýsingar voru til um sum börnin og því þurfti Desire m.a. að velja mörgum þeirra afmælisdag. Desire ákvað að skrá 1. janúar sem afmælisdag margra þessara barna. Þess vegna var ekki aðeins haldið upp á nýársdag í Kongó í vikunni sem leið heldur var þar líka margföld afmælisveisla. Þessi dagur er því jafnvel hátíðlegri í þorpinu en jólin sjálf. Ef að þið eins og ég, þá kunnið þið að meta það að þið vitið hver er fæðingadagur ykkar og að þið vitið hver fjölskylda ykkar er. Þetta eru blessarnir sem ég er virkilega þakklátur fyrir. En þegar að líf barna er umturnað með þeim hætti sem gerðist í A-Kongó eru þetta blessarnir eitthvað sem þessi börn njóta oft ekki. En, þessi börn hafa verið blessuð vegna þess að þau komust í umsjón ICC, því að þau hafa fengið meira en bara nýjan afmælisdag. Þau hafa fengið fjölskyldu og ný tækifæri í lífinu. Stuðningur einstaklinga eins og þín gerir þetta mögulegt. Þakkir til ykkar allra sem veitið börnunum í A-Kongó og hundruðum barna í umsjón ICC um allan heim sannarlega gleðilegt nýtt ár og hamingjuríka afmælisdaga. Megi Guð blessa ykkur og gefa ykkur hamingju og góða heilsu á nýjur ári!
Rúmenía – hvernig ganga framkvæmdirnar? Nú er verið að vinna í því að laga loftið í vinnslusal brauðgerðarinnar. Eins og er eru starfsmenn okkar í Rúmeníu að vinna þetta verk í hjáverkum. Þetta þokast samt smátt saman í rétta átt. Myndir af framvindu verkefnisins eru að finna á myndasíður okkar, www.flickr.com/photos/icciceland.
2011 20. ára afmæli ICC í Rúmeníu Sunnudaginn 16. október hélt ICC í Rúmeníu upp á 20 ára afmæli verkefnisins. Bygging barnaþorpsins sjálfs hófst ekki fyrr en árið 1998 en fyrir þann tíma hjálpaði ICC alls yfir 1000 fjölskyldum með matarfgjöfum og fjárhagsaðstoð. Síðan að farið var að byggja upp barnaþorpið fyrir 13 árum hafa risið þar 3 heimili fyrir börnin, hús fyrir starfmenn, skrifstofurhúsnæði og geymslur, gróðurhús og verið er að reisa brauðgerð. Við hjá ICC þökkum Guði fyrir að hafa verið með starfinu í Rúmeníu og hjálpað okkur að hlúa að þeim börnum sem verið hafa og eru í okkar umsjón þar. Við hér á Íslandi óskum einnig ICC í Rúmeníu innilega til hamingju með þennan áfanga.
Viltu þú starfa fyrir Alþjóðlegu
barnahjálpina? Gjaldkeri Okkur vantar einstakling sem að vanur er að færa bókhald og treystir sér til að halda utan um bókhald félagsins auk gerðar árskýrslu ár hvert. Starf gjaldkerar er ekki tímafrekt en þarfnast nákvæmni, heiðarleika og skilvirkni. Reynsla af bókhaldi er skylda og æskilegt er að viðkomandi hafi brennandi áhuga á málefnum félagsins og velferð barna í okkar umsjón. Meðstjórnandi - fjáröflun Allir stjórnarmeðlimir hafa ákveðið ábyrgðarsvið og leitumst við eftir að fá til liðs við okkur hugmyndaríkan og drífandi einstakling sem hefur brennandi áhuga á málefnum félagsins og velferð barna í okkar umsjón til að hafa yfirumsjón með fjáröflun félagsins. Athugið! Öll stjórnarseta í stjórn Alþjóðlegu barnahjálparinnar er unnin í sjálfboðastarfi. Áhugasamir vinsamlegast hafið samband við Þóru Lilju í síma 822-4931.
Aðrar fréttir frá barnaþorpinu í Rúmeníu Krakkarnir okkar stóðu sig sérstaklega vel í skólanum síðastliðinn vetur og 8 þeirra fengu sérstök verðlaun fyrir námsframvindu. Það var mjög gaman fyrir starfsfólk barnaþorpsins að lesa umsögn kennara barnanna og skólastjórnenda í lok skólaársins. Meðal þeirra orða sem kennararnir notuðu til að lýsa krökkunum okkar voru; hefur hæfinleika á sviði lista, á léttt með að eiga samskipti við aðra, er ábyrgur, er forvitinn, metnaðargjarn, hreinskiptin, greind, næm, trúaður, kærleiksríkur, sýna kennurum virðingu, eru virk í starfi skólans og hefur þegar á þarf að halda virkt ímyndarafl.
Þetta er dásamlegur vitnisburður, ekki bara um skólann og það sem hann er að gera fyrir krakkana okkar í Rúmeníu heldur líka fyrir starfsfólkið og börnin sjálf. Þá byrjuðu þrír strákar frá barnaþorpinu nám í menntaskóla í Búkarest í haust. Þetta eru fyrstu menntaskólanemar verkefnisins í Rúmeníu. Strákarnir eru á aldrinu 14-15 ára en skólakerfið í Rúmeníu er nokkuð frábrugðið því sem gerist á Íslandi. Til að komast inn í menntaskólann þurftu strákarnir að hafa góðar einkunnir úr barnaskólanum sínum og ná auk þess inntökuprófi í menntaskólann sjálfann.
Í sumar hélt kór barnaþorpsins fjáröflunartónleika fyrir starfsemi barnaþorpsins. Þrír elstu strákarnir í þorpinu voru svo með vitnisburð (menntaskólastrákarnir okkarJ). Viðburðurinn var vel heppnaður og stóðu krakkarnir sig með stakri prýði.
Af öðru fréttnæmu frá Rúmeníu ber að nefna að uppskeran í haust gekk vel. Þá mjakast framkvæmdi við brauðgerðina áfram. Rúmenskt fyrirtæki gaf efni í loftin fyrr í sumar.
Fréttir frá barnaþorpinu í Kongó Allt gott er að frétta frá barnaþorpi okkar í A- Kongó. Vopnuð átök hafa ekki verið á svæðinu þar sem af er árinu og engar skemmdir urðu á regntímabílinu eins og orðið hefur undanfarin ár. Þær ráðstafanir sem gerðar voru í fyrra til að verja barnaþorpið vegna árlegra flóða og vatnsrofs hjálpuðu til við að ekkert skemmdist. Í sumar var byggingu lokið við áttunda húsið í barnaþorpinu og fyrri áfangi gagnfræðiskólans var málaður og fullkláraður. Meðfylgjandi myn er af ánægðum börnum á veröld nýja hússins. Til hamingju með nýja húsið krakkar!
Saga Cosminu Nýlega rakst ég á sögu einnar stúlkunnar, sem býr í barnaþorpinu í Rúmeníu og þau ykkar sem farið hafið í heimsókn þangað kannist við. Saga hennar sýnir að svo sannarlega mikilvægi þess starfs sem unnið er í barnaþorpinu okkar í Rúmeníu og um allan heim. Í Rúmeníu er fátækt alvarlegt vandamál sem hefur djúpstæð áhrif á líf þúsunda barna. Vegna þessarar fátæktar verða mörg börn árlega það sem þar í landi kallast félagslegir munaðarleysingjar, þ.e.a.s. þessi börn eru yfirgefin af bláfátækum foreldrum sínum sem eiga hvorki í sig eða á. Sumar mæður trúa því að börn þeirra séu betur komin í höndum yfirvalda en í þeirra umsjón. Þannig að án mikillar kveðjustundur, skilja þessar fátæku mæður börnin sín eftir á spítalanum og koma ekki til baka. Þessi börn eru því á ábyrgð yfirvalda og sett í fóstur eða á stofnanir víðs vegar um Rúmeníu. Cosmina (ekki hennar rétta nafn) er eitt þessara barna.
Cosmina kom í umsjón Alþjóðlegu barnahjálparinnar árið 2001, þá var hún tveggja ára. Mamma hennar hafði fætt hana og svo skilið hana eftir á fæðingardeildinni. Þegar að Cosmina var 4 ára var fyrsta heimili Alþjóðlegu barnahjálparinnar í Rúmeníu opnað og Cosmina flutti þangað frá móttökumiðstöð samtakanna þar sem hún hafði áður búið. Þennan dag var Cosmina mjög, mjög spennt. Yfirmaður barnaþorpsins í Rúmeníu, hún Gabi, kom til að fylgja henni á nýja heimilið. Hún mátti taka með sér eina dúkku frá móttökustöðinni til að flytja með sér. Það val var ekki erfitt. Auðvitað fékk uppáhaldsdúkkann hennar Cosminu að fara með!
Cosmina tók í hendi Gabi og svo gengu þær yfir að nýja heimili hennar. Þar tóku hjón á móti henni og konan tók hana í fangið og sagði við hana, núna ert þú litla stelpan mín. Loksins hafði Cosmina eignast heimili, mömmu og pabba og hún var alsæl!
Cosmina er núna 13 ára, velgefin og dugleg stúlka sem er ánægð með lífið og tilveruna. Þetta er kjarni ICC hugmyndarinnar, að sjá börnum sem eiga enga aðra að fyrir heimili, fjölskyldu og menntun.
Cosmina hittir nýju mömmu sína og nýleg mynd af henni.
Fjölskylduhátíð sunnudaginn 10. október kl. 14-17. Sunnudaginn 10. október kl. 14-17 verður fjölskylduhátíð Alþjóðlegu barnahjálparinnar haldin í Suðurhlíðarskóla, Suðurhlíð 36, Rvk. Hátíðin verður í senn skemmtileg og heimilisleg þar sem allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Meðal þess sem í boði verður er: kastþrautir, hoppufjör, hreystibás, nudd, kaffibás, happadrætti, tindáttabás og andlitsmálun. Vegleg verðlaun verða í boði. Allur ágóði af hátíðinni rennur til byggingar á seinni áfanga gagnfræðiskóla í barnaþorpi Alþjóðlegu barnahjálparinnar í A-Kongó. Börnin sem þarna búa lifðu af hin svokölluðu Kongóstríð, sem voru mannskæðustu átök síðan að Síðari heimsstyrjöldinni lauk. Allir velkomnir
Neyðarbeiðni frá Rúmeníu Töluvert vantar upp á að endar nái saman í barnaþorpinu í Odobesti í vetur og nú er staðan sú að þau eiga ekki fjármagn til að kaupa við til að kynda upp fyrir veturinn. En á þessum slóðum fór hitinn ofan í 20-30 stiga frost í janúar og febrúar á þessu ári. Íslandsdeild ICC hefur verið beðin um að senda 500 evrur til þessa verkefnis eða tæplega 78.000 kr á núverandi gengi og svo munu hin aðildarsamtök ICC í Evrópu leggja til hlut í þetta verkefni eftir stærð. Þeir sem vilja og geta lagt þessu verkefni lið er bent á reikning okkar 116-26-4, kt. 491202-3430. Vinsamlegast merkið styrkin: viður
Árlegir styrktartónleikar Árlegir styrktartónleikar Alþjóðlegu barnahjálparinnar verða að þessu sinni haldnir í Hveragerðiskirkju sunnudaginn 7. nóvember kl. 14. Söngsveit Hveragerðis undir stjórn Margrétar Stefánsdóttur auk fleiri tónlistarmanna koma fram. Allt tónlistafólkið mun gefa vinnu sína og rennur ágóði tónleikanna til barnaþorpsins í A-Kongó. Tónleikarnir verða nánar auglýstir síðar en endilega takið daginn frá!
Ný myndasíða Alþjóðlegu barnahjálparinnar. Ný myndasíða ICC er www.flickr.com/photos/icciceland Þar gefur að líta myndir úr sjálfboðaferðum ICC, ásamt svipmyndum frá Kongó og nýjustu myndum frá barnaþorpinu í Rúmeníu.
Fyrrum götubarn kemur nauðstöddum til hjálpar Viorel (ekki hans rétta nafn) kom á barnaþorp ICC í Rúmeníu árið 2003 eftir að lögreglan hafði fundið hann á lesarstöð. Vegna þess að upplýsingar vantaði um hann var ekki hægt að bera fullnægjandi kennsl á hann. Viorel er venjulega hamingjusamur og samvinnufús. Hann er heilsuhraustur og kemur vel saman við hin börnin. Hann er vinalegur, hlýðinn og kurteis. Þeir sem farið hafa í sjálfboðaferðir til Rúmeníu vita að Viorel er mjög áhugasamur um að læra ensku. Hann ætlar sér að verða prestur þegar hann vex úr grasi. Þann 19. júní var mjög sérstakur dagur í lífi Viorel. Hann var að staddur í kirkju þegar að ákall kom frá Hjálparstarfi ADRA um að fá sjálfboðaliða til að vinna á svæðum sem orðið höfðu orðið illa úti í miklum fljóðum í landi (nánar tiltekið Pașcani í Iași sýslu). Verkefnið fól í sér að byggja nýtt hús fyrir fjölskyldu með sjö börn. Þessi fjölskylda hafði búið í litlum vagni í átta ár sem hafði nú eyðilagst. Viorel vildi strax hjálpa til. Þannig að þegar að skólanum lauk í byrjun júlí fór hann ásamt 13 öðrum ungmennum frá því svæði sem barnaþorpið stendur á til Pașcani. Það tók hópinn fjóra daga að byggja fjölskyldunni heimili. Þau komu aftur reynslunni ríkari. Þau unnu, skemmtu sér, eignuðust nýja vini og fundu að þau gátu virkilega hjálpað öðrum. Á leiðinni heim fengu þau að sjá þær skelfilegu aðstæður sem margir búa við vegna fátæktar en jafnframt að líta sögufræga staði í Rúmeníu. Viorel kom heim til barnaþorpsins sæll með ferðina.
Hollensk fyrirtæki kemur til hjálpar Á síðasta tölublaði greindum við frá miklum skemmdum á landsvæði barnaþorps ICC í Kongó sökum rigninga. Fjármagn hefur nú verið sent til að lagfæra skemmdir sem urðu á tveim húsum og landsvæði þorpsins. Þá hefur ICC í Kongó borist aðstoð frá Hollandi. Þarlent fyrirtæki hefur sent mikið magn af fræjum til að sá á landsvæði barnaþorpsins til að freista þess að binda betur jarðveginn.
Kæru velunnarar,
2. Þakkir fyrir góðar undirtektir við flöskusöfnun og
lakkríssölu sjálfboðaliða 5. Kristján Friðbergsson 80 ára Kær kveðja Þóra Lilja 1. Miklar rigningar og jarðrof í Kongó Miklar rigningar hafa verið í Kongó að undanförnu og hefur það valdið aurskriðum og vatnsrofi á landi barnaþorpsins. Engan hefur þó sakað í þessum hörmungum (sjá meðfylgjandi myndir).
Ástandið og jarðvegsraskið er sérstaklega slæmt vegna þess að
barnaþorpið stendur neðst í brekku. Nágrannarnir sem búa í hæðinni fyrir ofan
barnaþorpið eru búnir að ryðja lönd sín og höggva flest öll tré. Það er því
lítið sem bindur jarðveginn og þess vegna hafa aurskriður og annað tjón að
völdum rigninganna verið mikil í barnaþorpinu. Búið er að samþykkja af
samfélaginu á eynni að byggja einhvers konar skjólvegg og grafa skurði sem veit
því vatni sem ekki fer ofan í jarðveginn hafi öruggan farveg út í Kivuvatnið en
grafi sér ekki farveg í gegnum mitt barnaþorpið eins og gerðist nú. Þá verða
fleiri tré gróðursett á landi barnaþorpsins. Nú er bara að vona að þau plön
gangi eftir og þetta verði í síðasta sinni sem land barnaþorpsins verður svo
illa leikið af aur og vatnskemmdum. Við viljum koma sérstökum þökkum til þeirra fjölmörgu sem gáfu flöskur og keyptu lakkrís af sjálfboðaliðunum sem fóru til Rúmeníu í enda maí. Ágóðinn af þessari söfnun sjálfboðaliðanna hefur verið gefin til almenns reksturs barnaþorpsins í Rúmeníu. Þá viljum við þakka þeim sem gáfu prjónafatnað, sokka og vettlinga, til barnanna í barnaþorpinu og fleiri þurfandi barna í Rúmeníu og Búlgaríu. Íslenski prjónafatnaðurinn skapaði lukku og þótti sérlega fallegur. Það var gaman fyrir sjálfboðaliðana að geta komið svona færandi hendi til barnaþorpsins. 3. Sjálfboðaliðaferð til Rúmeníu vel heppnuð Þann 24. maí fór hópur 8 Íslendinga í sjálfboðaliðarferð til barnaþorpsins í Rúmeníu. Þetta var sögulegaferð sem spannaði alls þrjú lönd, Bretland, Rúmeníu og loks Búlgaríu (en þangað fórum við í smá frí að verkefninu í Rúmeníu loknu). Verkefni hópsins var að búa gólf brauðgerðar sem rísa á á landi barnaþorpsins fyrir að vera steypt. Húsið er feiknastórt og verkefnið því ærið. En allt hafðist þetta að lokum. Með Guðs hjálp og skóflur og hjólbörur að vopni tókst okkur að bera tæpa 3 trukkafara af steinum inn í húsið og slétta öll gólf! Á síðasta kvöldi sjálfboðaliðahóps frá Íslandi í barnaþorpinu okkar í Rúmeníu ljóstruðu yfirmenn þess upp fyrir okkur á sérstakri kvöldstund fyrir okkur, börnin og starfsfólk barnaþorpsins að þeir hefðu verið ánægðir að heyra að hópur væri á leiðinni frá Íslandi að hjálpa til við brauðgerðina, en um leið nokkuð áhyggjufullir vegna þess að verkefnið var stórt og sjálfboðaliðarnir aðeins 8. Þeir lýstu því yfir að þeir væri mjög ánægðir með vinnu hópsins og jafnframt hissa á því hvað mikið við höfðum áorkað á skömmum tíma. Einn úr hópi sjálfboðaliðanna sagði þá að það hefðu ekki verið nema 8 í örkinni hans Nóa. Þannig að ef fólk er viljugt þá gefur Guð því kraft til að vinna það verk sem því er ætlað. Uppfrá því var hópurinn kallaður Nóahópurinn. En Nóahópurinn gerði meira en bara að vinna. Skemmtilegustu stundunum voru þær sem varðar voru með börnunum. Þá fengum við tækifæri að heimsækja vini okkar sem Íslendingar hafa kynnst úr sveitaþorpinu Odobesti þar sem börnin búa. Það var frábær forréttindi að kynnast því hjartahlýja fólki sem býr við hlið sjálfboðaliðahúsins. Auk annarra vina í þorpinu. María (þeir sem farið hafa í ferðir með ICC til Rúmeníu þekkja hana) gaf okkur grænmeti og egg og Jedena gamla brosti allan hringinn þegar hún sá okkur. Hápunktur ferðarinnar að margra mati var þegar kór barnaþorpsins hélt tónleika fyrir okkur sjálfboðaliðanna í kirkjunni í Odobesti. Þvílíkar raddir og vitnisburður! Alveg ógleymanleg lífsreynsla. Myndir frá ferðinni má sjá í viðhengi. 4. Styrktartónleikum frestað fram til hausts Styrktartónleikum Alþjóðlegu barnahjálparinnar hefur verið frestað þar til í haust og verða nánar auglýstir síðar. 5. Kristján Friðbergsson 80 ára Kristján Friðbergsson, annar af stofnendum Alþjóðlegu barnahjálpina á Íslandi varð áttræður 5. júní. Við óskum honum hjartanlega til hamingju og þökkum honum og Unni konu hans fyrir allan þann stuðning sem þau hafa sýnt börnunum í Odobesti í Rúmeníu og ICC börnum á heimsvísu. Við þökkum Kristjáni einnig fyrir að hafa í tilefni afmælis síns beint gestum sínum á að láta fé rakna til starfsemi Alþjóðlegu barnahjálparinnar. Til hamingju með afmælið Kristján!
Kveðja frá Rúmeníuförum 2010 Á mánudaginn síðasta fórum við hóstandi og halfveik af stad til Bretlands þaðan sem við ætluðum að fara morguninn eftir til Rúmeníu. Vinur okkar, Daren, sem margir þekkja frá fyrri ICC ferðum tók á móti okkur og þau hjónin opnuðu heimili sitt fyrir okkur. Það var virkilega gaman að hitta þau. Við fórum frá Luton flugvelli og lentum í enn einu flugvallarævintýrinu! Þeir eru alltaf jafn liðlegir a Luton. En það fór vel með Guðs hjálp. Við komum svo til Rúmeníu í steikjandi sól. Það var vel tekið á móti okkur að vanda. Rosalega fínn matur og fínheit. Nú erum við búin að vera í vinnu í þrjá daga og það hefur gengið mjög vel en er alveg hörkupúl þannig að við erum hálfuppgefin eftir daginn. Í gær fórum við svo út að leika við krakkana. Það var heldur betur fjör! Krökkunum líður vel og eru hress. Hópurinn er líka smátt og smátt að komast á gott ról. Verið er að úða í okkur hvítlauk, sítrónum og fleira til að ná úr okkur flensunni sem við tókum með okkur frá Íslandi. Nú eru allir búinir að jafna sig nema einn. Takk fyrir bænir ykkar! Guð blessi ykkur einnig. La revedere (bless a rumensku), Rúmeníufararnir
Flöskusöfnun og lakkríssala Við verðum með flöskusöfnun í gangi! Einnig erum við með til sölu lakkrís á 1000 kr. kílóið í sama tilgangi. Ágóðinn rennur til barnaþorpsins okkar í Rúmeníu. Þangað fara frá Íslandi í lok maí 8 sjálfboðaliðar og stefnt er að því að afhenda það sem kemur út úr þessari söfnun þá sem gjöf til barnaþorpsins. Hjálpið okkur að koma færandi hendi til barnanna í Rúmeníu, Ármann, Benni, Bogga, Hlynur, Ingibjörg, Jón Holbergs, Kiddi og Þóra Lilja Hægt er að ná í okkur á netfanginu icc@internet.is eða í síma 822-4931 (Þóra Lilja). Getum komið til fólks og náð í flöskur.
Góðar fréttir Erum búin að fá nægt fé frá íslenskun styrktaraðilum til að festa kaup á moskítónetunum fyrir barnaþorpið okkar í Kongó og erum búin að senda peningana út til Kongó. Við þökkum skjót viðbrögð og gjafmildi, Stjórn Alþjóðlegu barnahjálparinnar
Ársyfirlit frá Rúmeníu 28 börn Eftir að skipti urðu á fósturforeldrum í barnþorpinu 2008 reyndist erfitt að finna jafngóða aðila til að sinna börnunum. Það tókst hins vegar á árinu og erum við mjög glöð að segja frá því að nú eru komnir foreldrar og frænkur á öll 3 heimilin. Á árinu var vinnu við brauðgerðina haldið áfram, mikið til af sjálfboðaliðum. Draumurinn er að brauðgerðin, muni þegar hún kemur í notkun, afla barnaþorpinu aukatekna sem það þarfnast svo sárlega. Síðasta sumar og haust var uppskeran úr görðum barnaþorpsins og gróðurhúsi næg til að uppfylla þarfir barnanna í þorpinu. Í desember hélt kór barnanna í barnaþorpinu í Rúmeníu stórtónleika ásamt fleiri þarlendum kórum og tónlistarmönnum í höfuðborg landsins Búkarest til styrktar reksturs barnaþorpsins.
Ársyfirlit frá Kongó Vegna þess hve þörfin er mikil í þessu landi og hversu mörg börn eru í umsjón Alþjóðlegu barnahjálparinnar, þurfa enn sum barnanna að deila rúmi með öðrum, ýmist 2 eða 3 saman. Byrjað er að byggja gagnfræðiskóla. Börnin eru að vaxa úr grasi og þörfin fyrir slíkan skóla er mikil í barnaþorpinu. Ríkisstjórnin í Kongó er að ýta á okkur að ljúka við byggingu skólans, en við getum aðeins byggt eins hratt og fjárframlög berast til þessa verkefnis. Stjórnmálastaðan í Kongó er stöðug í augnablikinu. Yfirmenn Alþjóðlegu barnahjálparinnar á heimsvísu hjónin Rick og Sharon Fleck gátu heimsótt barnaþorpið nýlega og sögðu börnin glöð og heilbrigð þrátt fyrir það sem þau hafa mátt þola.
Mikil sala á barnabókinni Litlar sögur Jólasala félagsins gekk framar björtustu vonum. Ein af velgjörðarkonum starfsins á Íslandi gaf okkur kassa af nýútkominni barnabók fallegri barnabók Litlar sögur, auk jólakorta. Auk þess sem Kirkja aðventista í Hafnarfirði gaf fleiri jólakort og myndir. Skemmst er frá því að segja að salan gekk mjög vel og seldust t.d. yfir 150 bækur voru seldar (Áhugasömum skal bent á að við eigum fleiri einstök af þessari frábæru bók sem kostar 500 kr.). Þá fengum við tækifæri til að vera með sölu og þar með kynningu á starfi okkar í jólaþorpunum í Reykjavík og Hafnarfirði.
Ferð til Rúmeníu Hefur þú áhuga á því að skoða hvað starf Alþjóðlegu barnahjálparinnar snýst um og hjálp til í barnaþorpi okkar í Rúmeníu í 10 daga? Við stefnum að því að heimsækja barnaþorpið í lok maí. Íslensk ferð og fararstjórn. Ekki hika við að hafa samband ef að þú vilt nánari upplýsingar um ferðina, kostnað og fl. Kynningarfundur verður haldinn í byrjun febrúar og verður nánar auglýstur síðar.
Samstarf við Ullmax á Íslandi Í lok árs hófum við samstarf við Ullmax á Íslandi. Ullmax er norskur framleiðandi sem framleiðir hágæða ullar– og útivistarvörur á góðu verði. Hugmyndin á bak við þessar vörur er að í hvert skipti sem þær eru keyptar leggi kaupandinn einhverju góðu málefni lið. Áætlum við að halda sérstakar Ullmax sölur 2 á ári. Fyrsta slíka salan fór fram í anddyri Loftsalsins, Hólshrauni 3 í Hafnarfirði þann 16. desember og fékk starfið 25% af hverri seldri flík. Hægt að er skoða nánar þessar góðu vörur á netsíðunni ullmax.is en þar er einnig hægt að versla sér vörur og hvetjum við þá ykkur lesendur góðir til að láta Alþjóðlegu barnahjálpina njóta góðs af því með því að styðja viðeigandi reit þegar pantað er.
Flöskusöfnun 10. janúar Í september var haldin fyrsta flöskusöfnunin og tókst það með ágætum. Stefnt er að því að halda slíka dag 2-3 á ári. Fyrsti flöskusöfnunardagurinn verður næstkomandi sunnudag frá kl. 13-15. Endilega hafið samband við okkur í síma 822-4931 eða á netfangið okkar icc@internet.is ef að þið viljið styðja starf okkar með þessum hætti og við getum nálgast flöskur og dósir til ykkar eða þið getið komið til okkar. Gott tækifæri til að losna við allar birgðirnar síðan um jólinJ
|
Tenglar barnahjálparinnar í öðrum löndum.
|
|
Alþjóðlega barnahjálpin - icc@internet.is |