Alþjóðlega  barnahjálpin

 Um ICC

Home
Fréttir
Um ICC
Verkefni
Ársskýrslur
Styrktarforeldri
Þorpsforeldri
Hjálp

Styrktareikningur

Alþjóðlega Barnahjálpin

kt. 491202-3430

Banki: 116-26-4

Stjórn Alþjóðlegu barnahjálparinnar á Íslandi

Sigurborg Ólafsdóttir, s: 554-5541

Sigurbjörg Kristín Sigurðardóttir, s: 555-4013

Sóley Jónsdóttir, s: 565-1437

Þóra Lilja Sigurðardóttir, s: 565-4931

Netpóstur: icc@internet.is

Hver erum við?

ICC  (International Children´s Care) varð til eftir að harður jarðskjálfti reið yfir höfuðborg Guatamala árið 1978. Mörg börn urðu munaðarlaus í þessum skjálfta og urðu nokkur þeirra fyrstu skjólstæðingar ICC. Nú er ICC með 18 verkefni í 19 löndum. Markmið okkar er að lina þjáningar og raunir barna um allan heim, sérstaklega þeirra sem eru án stuðnings foreldra eða forráðarmanna. Við leitumst við að gefa börn sem eru munaðarlaus, yfirgefin, misnotuð eða vanrækt þann kærleika og það öryggi sem þau eiga skilið. ICC eru kristileg samtök og er Alþjóðleg barnahjálpin íslenska heiti hinna alþjóðlegu samtaka.
 
Hver er ICC formúlan?
ICC formúlan er einföld en árangursrík.
bulletFjölskylda: Á hverjum stað þar sem við störfum reisum við 10 einbýlishús sem hvert um sig verður heimili 8-10 barna. Á heimilinum búa einnig innfædd hjón eða fjölskylda sem hugsa um og gæta barnanna af hlýju og kærleik. Þannig búum við börnum okkar sem koma til okkar fjölskyldu og þann stöðugleika sem þau þarfnast. Við hvert hús er garður þar sem börnin geta leikið sér og hægt er að gróðursetja grænmeti og rækta ávexti. 
bulletFramtíðaröryggi: Börnin sem fara alast upp á heimilum ICC eiga alltaf víst skjól og stuðning hjá ICC, eins og stuðningur „alvöru“ fjölskyldu líkur ekki þegar barnið verður 18 ára. ICC er fjölskylda sem nú á fjölda barnabarna.
 
Hvað eru áform okkar?
Ásamt heimilunum tíu  á hverjum stað er hugsunin sú að hafa grunnskóla, kapellu og búgarð. Í sumum löndum eru sérstakar móttökustöðvar starfræktar sinna nauðsynlegri læknisaðstoð og umhyggju áður en börnunum er fundin fjölskylda. Menntun og starfsþjálfun er gríðarlega mikilvæg fyrir framtíð barnanna. Reynt er að reisa barnaþorpin nærri framhaldsskólum ef það er mögulegt. Búskapurinn  aflar svo ekki einungis fæði heldur nýtis einnig sem starfsþjálfun fyrir börnin í landbúnaði.

 

Hvað getur þú gert til að hjálpa?
Stutt barn
Gefið fjármuni til einstakra verkefna
Gefið af tíma þínum
Beðið fyrir börnunum okkar
 
Hvernig geturðu fengið að heyra meira um ICC?
Þú getur skrifað okkur og/eða heimsótt vefsíðurnar: www.forhiskids.org eða www.iccuk.org.uk 

 

Tenglar barnahjálparinnar í öðrum löndum.

 

Ameríka

Ástralía

Belgía

England

Guatemala

Holland

Spánn

Sviss

Þýskaland

 

 

Alþjóðlega barnahjálpin - icc@internet.is