Það helsta...afmæli og prófstress!

Undan farna viku hef ég verið svona um það bil að fara á taugum...enda hefur prófkvíði (og kannski líka fullkomnunarárátta) aukist mjög til muna með aldrinum. Í vikunni átti ég afmæli og fór í próf!

 

Á afmælisdaginn hrærði ég í köku og fékk nokkra góða gesti í afmæliskaffi...

þeir björguðu geðheilsunni!!

 

 

 

Og blómin sem mér voru færð voru til að bæta mjög taugarnar...

 

 

...Liljur voru blóm dagsins, enda í miklu uppáhaldi hjá afmælisbarninu!

 

 

 

Þessa rómantísku lukt færði Guðrún Lára mér og ég get ekki beðið eftir að

bjóða í huggulegt kaffi á svalirnar í sumar þar sem loga mun á luktinni...kannski að ég

reyni svona flugnafælukerti?

 

 

Og fyrir konu sem hefur alltaf óskað sér diskókúlu þá var þetta pakkaskraut alveg að gera sig

fullkomlega! Guðrún Lára á heiðurinn af því.

 

 

 

 

 

Og daginn eftir afmæli! Ástþór Örn fékk sér afmælisköku þegar hann

kom heim af Álfaheiði

 

 

Feðgagrín!

 

 

Á meðan ég sat inni og svitnaði í lófunum yfir bókunum voru þeir feðgar úti að leika

 

 

Í morgun þegar ég var að gera mig klára fyrir brottför í Árnagarð létu þeir feðgar fara vel um sig og

horfði á Svamp Sveinsson

 

 

Og séð inn í eldhús...já ég var alveg rugluð þegar ég kom heim úr prófinu í dag!