Afmælisveislan

Tyrklandsferðin var að hluta afmælisgjöf til mín frá bestu foreldrum í heimi! Það var því að sjálfsögðu haldið upp

á afmælið á besta stað í heimi, Jan de Wit!

Afmælið var haldið 27. maí sem hentaði vel! Við mamma hófum daginn á því að fara í tyrkneskt bað sem varla

er hægt að lýsa. Og að sjálfsögðu var farið í afmæliskjólinn frá Kaupmannahöfn um kvöldið. Dagurinn ansi stór;

vinir okkar, Sirrý og Örn gefin saman á Íslandi og Hans og Nadia í Rúmeníu. Það voru því endalaus tilefni til þess

að lyfta glasi.

 

 

 

Og það var að sjálfsögðu afmæliskaka og reyndar líka þau glæsilegustu afmælisblóm sem ég hef séð. Ég

skil ekki enn hvernig ég gat gleymt að mynda þau.

 

 

 

 

Ástþór Örn er mikill afmælismaður og spurði hvenær hann mætti halda

upp á afmælið sitt í Tyrklandi! Verst hvað er mikil rigning þarna í febrúar ;o)

 

 

 

Fleiri myndir