Tyrkland
![]()
Þá erum við komin heim úr Tyrklandsferðinni. Vel heppnuð ferð og skemmtileg. Mamma og pabbi voru góðir fararstjórar, enda komið nokkrum sinnum áður til Tyrklands. Það voru því góðir vinir sem tóku á móti okkur víða!
Við tókum heilmikið af myndum, sem því miður segja aðeins hálfa ferðasöguna.
Flugferðin til Tyrklands tók um sex klukkustundir og vorum við ekki alveg viss um það hvernig spenntur
herramaður myndi haga sér. En það var ekki að spyrja að því að hann var eins og ljós alla leiðina. Hlustaði svolítið
á tónlist, lék sér við Playmo og tilkynnti öðrum farþegum ferðaáætlun. En hann sagði öllum þeim sem heyra vildu að
hann væri á leið til Tyrklands "með alla fjölskylduna"!!!
Lagði sig svo í dágóða stund!
Moskan í miðbænum
Komin niður í miðbæinn í Marmaris. Ataturk fylgist þarna með sínu fólki og öðru.
Það var því ekki annað hægt að reyna að lesa sig svolítið til! Fundum þessa fínu myndasögu
sem segir sögu Ataturk. Þeir nafnar lásu og skoðuðu spenntir.
Í hádegismat á Jan de Wit. Sá staður er í miklu uppáhaldi hjá mömmu og pabba og varð fljótt uppáhald okkar líka!
Mamma og pabbi ánægð með að vera komin "heim"!
Beti stórvinur okkar, Sigurður og Ástþór Örn
Við vorum stödd á vatnsmelónutímanum úti. Við Íslendingarnir höfum litla tilfinningu fyrir því hvenær ávextir
eiga sitt "season" en komumst fljótt að því að það er allur munur því að fá ávextina nýja og ferska úr næsta bæ
en flutta yfir hálfan hnöttinn!! Svona ávaxtadisk fengum við eftir matinn í hádeginu og á kvöldin en þá var einnig boðið
upp á baklava kökur.
Ástþór Örn kominn á háhest hjá Toni sem vinnur á veitingahúsinu góða!
Og hér búinn að fá hann Faysal með sér á bryggjuna. Faysal á veitingahúsið og er góður vinur mömmu og pabba.
Ástþór Örn lék sér svolítið við son hans, hann Barik sem er að verða fimm ára.
![]()
Rölt í gegnum bæinn á leið út að borða.

Ersim á Jan de Wit.
![]()
Ástþór Örn skemmti sér vel á leiksvæðinu á hótelinu!
Fékk sér líka nýja "Kallaskyrtu" í ferðinni, en það kallast röndóttar skyrtur!!
Með hattinn hans afa Ástþórs
Hressandi að kæla sig niður í sundlauginni. Það var í kringum 35° C og sól flest alla dagana.
Leikið í lauginni. Tekið eftir því hvað Pabbi og Sigurður Ágúst eru vel rakaðir. Þarna var farið í rakstur og nudd
reglulega!
![]()
Á leiðinni á ströndina. Ég dróst fljótt aftur úr...
þar sem ég varð að stoppa reglulega til að dást að blómum!
Mamma og pálmatrén
Sigurður sestur í sólbað
Ástþór Örn stórbuslari mættur á rétta staðinn
Mér fannst nú notalegast undir sólhlífinni enda aldrei verið mikið fyrir sólbað og borið óttablandna virðingu fyrir
sólinni!!
Horft í átt til gamla bæjarins af ströndinni
Og hér þeysist Sigurður Ágúst á sjóketti um fjörðinn
![]()