Bærinn, ströndin og fleira

 

 

Það er gaman að spóka sig um í bænum á Marmaris. Gamli bærinn og bryggjan er í mestu uppáhaldi hjá okkur. Þar eru mikið af notalegum veitingahúsum, stór basar og nokkrar skemmtilegar búðir í gamla bænum er gaman að skoða. Nú svo er alltaf gaman að líta á ströndina. Hér eru nokkrar myndir af ströndinni, úr bænum, markaðnum og sitt hverju fleiru!

 

 

 

Við mægðin á leið í bæinn. Ástþóri Erni finnst greinilega meira til styttunnar af Ataturk koma en að brosa á mynd!

 

 

 

Það hafði verið draumur hjá Ástþóri Erni að fá að vera á hlaupahjóli í Tyrklandi. Á öðrum degi fórum við því í leiðangur og fundum þetta fína

hlaupahjól sem Ástþór Örn ferðaðist um á suma dagana!

 

 

 

Stundum fékk Ástþór Örn þó að hvíla lúin bein á hestbaki! Hér eru þeir nafnar á leið í bæinn

 

 

 

 

Séð yfir gamla bæinn og bryggjuna

 

 

 

Ástþór Örn mættur á bryggjuna

 

 

 

Ég veit ekki hvað var drukkið mikið af ferskum appelsínusafa og borðað mikið af ís í ferðinni!

 

 

 

    

 

Í gamla bænum. Troðfullt við moskuna á föstudegi.

 

 

Hittum þennann sæta kisa, sem var einn af fáum kisum sem við hittum sem ekki var villiköttur.

En sem betur eru sum þessara litlu greyja sem eignast öruggt skjól.

 

 

Í fyrra sá ég svona blóm á ákveðnum stað í bænum. Ég fór því að sjálfsögðu aftur og vitjaði þeirra í ár. Ótrúlega falleg!

 

 

 

Ástþór Örn á bryggjunni en honum fannst fátt skemmtilegra en að rölta...nú eða hlaupa bryggjuna og skoða skúturnar

 

 

 

En það var líka notalegt að setjast aðeins og hvíla sig stundum.

 

 

Viktor frændi

 

 

Og afi og amma

 

 

Ástþór Örn með stórvini sínum honum Tony, sem vinnur á Jan De Wit...besta veitingahúsinu á Marmaris!

 

 

Hann mátti líka oft gabba í smá leik á bryggjunni!

 

 

 

 

 

 

Ástþóri Erni leist nú ekkert á rakarastofuna sem afi hans og pabbi fóru alltaf á í fyrra en í ár fannst honum fátt meira

spennandi en að fá að skjótast inn til þeirra og fá smá gel í hárið!!

 

 

Ferðafélagið utan Sigurðar, sem stóð á bak við myndavélina!

 

 

 

Þeir feðgar á fyrsta degi Sigurðar með okkur. Við Ástþór Örn byrjuðum á að sýna honum lítinn fornminjagarð sem við höfðum

rekist á nokkrum dögum á undan

 

 

Ástþór Örn með Gyðjuhæðir í baksýn sem eru þaktar kaktusum. Við vorum sammála um það að

við værum ekki spennt fyrir því að klífa þessar hæðir!!

 

 

Kaktusarnir að byrja að blómstra.

 

 

 

 

 

 

 

Ástþóri Erni fannst mikið til þessara stóru kerja koma og var hræddastur um að lenda ofan í einu!

 

 

 

 

 

 

Keypt inn á markaðnum. Þarna var endalaust af himneskum ávöxtum, grænmeti, hunangi, ólífum. blómum og alls konar góðu.

 

 

 

Þegar við komum heim bauð þessi sæti strákum upp á þau bestu jarðaber sem ég hef á ævinni smakkað!

 

 

 

Og um kvöldið borðuðum við á svölunum dýrindis rétti sem amma og afi áttu heiðurinn af

 

 

 

Beret vinur okkar kom einu sinni í heimsókn til okkar. Þeir félagar voru svolítið feimnir í fyrstu en áður en langt leið á heimsóknina var

Ástþór Örn farinn að ræða ýmislegt á íslensku við Beret, sem svaraði á tyrknesku!

 

 

 

 

 

 

Skruppum nokkrum sinnum á ströndina

 

 

 

 

 

 

Ástþór Örn skemmti sér konunglega á ströndinni við að moka, leika í sjónum og grafa upp og niður fjársjóði!

 

 

 

 

 

     

 

Frændur að busla í sjónum

 

 

Stundum gott að eiga stóran frænda sem getur bjargað manni þegar maður er kominn of langt!

 

 

 

Ástþór Örn voðalega sæll með það að vera í sumarfríi!

 

 

 

 

Kastalamyndir