Í janúar 2002 fórum við í ferðalag til Þýskalands. Við keyrðum frá Kaupmannahöfn til Rødby, þaðan sem við tókum ferju til Puttgarten í Þýskalandi. Þaðan var svo ferðinni heitir til Meinersen, til Áslaugar og fjölskyldu. Vorum þar í góðu yfirlæti í nokkra daga og keyrðum þá til Trittau og vorum hjá Davíð og fjölskyldu. Á leiðinni heim keyrðum við landleiðina, fram hjá Flensburg og upp Jótland yfir Litla belti til Fjóns, þar sem við komum við í Odense og svo yfir Stóra beltið á Sjáland og heim til Kaupmannahafnar.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér erum við í Braunschweig, sem er borg rétt hjá Meinersen. Braunschweig er önnur stærsta borg Neðra-Saxlands.

Í gamla bænum eru margar sögulegar minjar, þótt borgin hafi orðið illa úti í síðari heimsstyrjöldinni og gamli bærinn nánast eyðilagst.

Hér var rölt í búðir ásamt Áslaugu og Margréti, farið á kaffihús og notið lífsins eins og maður á jú að gera í útlöndum!

Frá Meinersen er ekki langt að fara til Wolfsburg þar sem er heimabær Volgswagen. VW opnaði Autostadt árið 2000, í tilefni af heimssýningunni í Hannover. Autostadt er í senn höfuðstöðvar VW samsteypunnar, bílasögu- og bílasafn og afhendingarstöð bíla svo eitthvað sé nefnt. Ég hafði nú ekki miklar væntingar þegar ég fór, en vissi að Sigurður var spenntur! Ég hélt ég væri að fara í einhverja gamla þýska bílaverksmiðju...sem mér fannst nú ekkert voða spennandi. En er glöð að við drifum okkur! 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér er Sigurður fyrir utan turnana í Autostadt, sem eru afhendingarstöðvar VW

 

 

 

...enn í Autostadt!

Sýningarsvæðið er geisistórt og glæsilegt þar sem fremstu hönnuðir og arkitektar hafa hannað skemmtilegan heim. Þetta er kannski svona Disneyland nema með bílategundum í stað Mikka og þeirra!! Hver bíll sem VW framleiðir á sér sérstakt "Pavilion" eða "Forum" t.d.     VW Pavilion, Bentley Forum, Lamborghini Pavilion, Skoda  Pavilion og fleiri.                                                                                     Það má sjá þetta allt betur útskýrt á heimasíðu Autostadt fyrir þá sem hafa áhuga.

 

 

Á leiðinni frá Wolfsburg til Meinersen stoppuðum við hjá myllusafninu í Gifhorn!

Davíð og fjölskylda búa í Trittau sem er lítill bær rétt utan Hamborgar. Við áttum bæjarrölt í Hamborg, kíktum í búðir og svo frv! Hér er ég í Altona með útvarpsturninn í baksýn.

 

 

Yljað sér í janúarkuldanum með heitum kaffibolla!