Sunnudagurinn 3. apríl

 

 

 

 

Vetrarvor í dag. Um daginn vorum við mæðginin að skoða myndir frá því í fyrra. Þar voru myndir af okkur úti að leika í garðinum í Langagerðinu 28.mars 2004...og allt var á kafi í snjó. Mig hefur því grunað, eins og marga væntanlega að vorið væri ekki alveg komið þrátt fyrir það að krókusarnir, trén og páskaliljur hafi reynt að telja manni trú um annað. En nú fer hitastigið vonandi að fara hægt upp á við. Við fjölskyldan drifum okkur út í snjóinn í morgun og áttum hinn besta dag sem endaði hér heima í brúnköku og kakói.

 

 

 

Vor innandyra...

 

 

 

Sem gamall aðdáandi Karlsson på taket datt mér bara hann í hug þegar Ástþór Örn fór í þessi

nýju fínu föt!!

 

 

 

 

 

 

Kalt hjá krókusunum...þeir hefðu átt að hraða sér minna upp.

 

 

 

Þessum vorkenndi ég mest...

 

 

Við  mæðginin í Laugardalnum

 

 

Ástþór Örn, dúfa og gæs!

 

 

 

Þetta andarpar freistaði þess að ná sér í brauðmola

 

 

Notalegt í "afmæliskaffi".