Sumarfrí
Hér koma fullt af myndum úr sveitinni þar sem við dvöldum í viku sem var allt of fljót að líða.
Sigurður Ágúst og Ástþór Örn gerðu sér heilmargt til dundurs á meðan ég sat lengst af og
skrifaði ritgerð. Það gafst samt tími til að gera margt skemmtilegt saman...enda sumarfrí!
Á leiðinni út að setja upp hestagerði...sem Sigurður hefur nefnt Langagerði!
Dufgus litli, nefndur eftir dalnum sem er fæddur í, Dufgusdal!
Og hér er hann ásamt Dögg
Ástþór Örn fékk að máta reiðhjálm og tók tímabundið starf sitt sem hestasveinn mjög alvarlega
Þeir tengdafeðgar skruppu í margra tíma hestaferð sem var víst stórskemmtileg
Mæðgur og mæðgin í kvöldsólinni
Kaupstaðarferð í Stykkishólm. Notalegt að rölta um bæinn, kíkja á höfnina og dást að draumahúsinu
þarna uppi á klettinum!
Voða notalegt hjá Pílu og Trýnu í sólinni
Sigurður Ágúst að fúabera sandkassa
Á meðan ég tók mér pásu frá vinnu og skoðaði himininn í góða veðrinu
Búið að koma sandkassanum saman
Ástþór Örn aðeins að spá og spekúlera
Dreif sig svo í sandkassann þótt að enginn sandur væri enn kominn í hann
Í góða veðrinu á miðvikudag drifum við okkur í smá ferðalag að Hellnum. Röltum niður í fjöru,
fengum okkur kaffi á Fjöruhúsinu og nutum veðurblíðunnar.
Ástþór Örn reyndi ekki einu sinni að vera hress á þessari mynd, enda vildi hann frekar hlaupa
í fjörunni en að sitja á kaffihúsi!!
Þeir feðgar fóru svo og kíktu í hellinn
Á Arnarstapa hefur hann Bárður Snæfellsás átt heima frá því 1983. Ég gat ekki
annað en tekið mynd af honum þegar ég koma þarna að núna og það rifjaðist
upp fyrir mér hvað hann var svakalega hár og mikill þegar ég kom þarna fyrst 8 ára!!
Mér leið þá bara eins og fuglinn sem situr á hausnum á honum...og virðist svo agnarsmár.
Á
leið í sveitina okkar aftur!
Búðir
Ástþór Örn vildi aðallega hanga hjá hestunum...
fórum stundum og laumuðum að þeim smá brauði.
Sandkassinn var svo mjög vinsæll líka!
Við Ástþór Örn enduðum fríið á góðum göngutúr og fylgdi okkur lóupar allan tímann.
Sjálfsagt verið að reyna að leiða okkur fram hjá ungunum sínum en Ástþóri Erni fannst
þessi fylgd lóanna ansi spennandi
Ástþóri Erni ekki hlátur í huga eftir að hafa smakkað krækiber í fyrsta skiptið!
Því var nú bara hrækt út úr sér.
Kominn inn í smá kaffitíma