|
Í páskafríinu 2002 ákváðum við að skreppa eitthvert skemmtilegt. Sigurður hugsaði stórt og vildi keyra til Rómar en slíkt ferðalag hefði nú tekið dágóðan tíma! Svanhildur var líka í vikunni á eftir að fara í stíft skólaferðalag til Spánar og því var ferð eitthvað aðeins styttra vel þegin!! Við ákváðum því að skreppa til Svíþjóðar og fannst tilvalið að keyra til Stokkhólms, en þangað hafði hvorugt okkar komið. |
|||
|
|
|||
|
|
Sigurður Ágúst í Gamla bænum eða Gamla-Stan. Þar er alveg yndislegt að rölta um þröngar göturnar, setjast inn á kaffihús og kíkja aðeins í búðir sem margar eru mjög sætar! |
||
|
Hér er Svanhildur í miðbænum, rétt við konungshöllina og þinghúsið. Það var frekar kalt í veðri, svona bara rétt að byrja að vora! |
|
|
|
|
|
Fundum fínasta hótel á vefnum og fengum þar inni á hótelhlutanum, fyrir farfuglaverð...ekki verra!! Hótelið heitir Hotell Zinkensdamm og er í Södermalm í Stokkhólmi og þaðan er um það bil 10 mínútna ferð með lestinni í miðbæinn. Vorum dugleg að skoða á daginn og því var ágætt að vera komin snemma heim, kíkja aðeins á sjónvarpið og slappa af. |
||
|
Svanhildur með þinghúsið í baksýn. |
|
||
|
|
Við
í Gamla-Stan
|
||
|
Á röltinu í bænum, hér rétt hjá óperuhúsinu. |
![]() |
||