Í byrjun apríl 2002 fór ég í ferð til Spánar. Ferðin var á vegum skólans, vegna námskeiðs sem fjallaði um Spán og Suður-Ameríku 1492 - 1750. Við fengum styrk fyrir hluta af ferðinni frá skólanum og fórum til Seville og Madrid. Það var stundum eins og að vera með tékknesku trékörlunum að ferðast með 31 Dana...svolítið verið að misskilja kortin og labba í hringi!!! En þannig vill það nú oft verða þegar margir ferðast saman.

Flogið var frá Kaupmannahöfn til Madrid og þaðan til Seville, þar sem við vorum í 4 daga. Hótelið okkar var í gamla bænum og bara ósköp notalegt. Við vorum fjórar sem deildum herbergi með engum glugga! Jú einum á baðinu, sem snéri fram í setustofuna á hæðinni sem við vorum á!! En það fór vel um okkur engu að síður.

Allir dagarnir fóru í skoðunarferðir! Það fór því lítið fyrir því að kíkt væri í búðir eða slappað af. Dagskráin var yfirleitt byrjuð klukkan hálf níu á morgnana til sex og sjö á kvöldin...með smá hádegishléi þarna einhvers staðar. En við náðum líka að skoða allt eiginlega! Á kvöldin var aðeins kíkt í búðir...við stelpurnar vorum glaðar þegar við sáum að búðirnar voru yfirleitt opnar frá klukkan 19-22! Svo var farið og fengið sér að borða. Dagarnir voru því frekar langir.

 

 

 

Fyrsta daginn í Seville var dómkirkjan skoðuð. Dómkirkjan er frá því á 13. öld. Hér á myndinni má einmitt sjá Bjölluturninn eða Giralda, sem er arfleifð Mára. Turninn er 97 metra hár og ég labbaði upp alla leið!

Dómkirkjan er samtals fimm kirkjuskip, m.a. Capilla Mayor, Retablo Mayor og Capilla Real.

Jarðneskar leifar Christopher Columbus eiga að vera hér í dómkirkjunni en þær voru fluttar ú dómkirkjunni á Havana þegar sú eyja fékk sjálfstæði. Kistan hans er hluti af stórri höggmynd þar sem fjórir menn halda henni uppi, og tákna spönsku konungdæmin fjögur; Castiliu, Leon, Aragon og Navarre.

Mjög fallegir steindir gluggar eru á dómkirkjunni, flestir frá því á 17. öld.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  Á leiðinni upp Giralda!

 

 

 

 

 

 

 

 

Á myndinni fyrir neðan, sem er líka tekin á leiðinni upp Giralda má sjá fyrir miðju nautabanavöllinn. Þangað fóru nokkrir í hópnum, ég lét mig vanta!

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér er ég í Real Alcázar, sem er Márahöll sem var byggð árið 931. Í heildina er Real Alcázar saman sett úr nokkrum höllum og fjölda glæsilegra garða, arkitektúrinn múslimskur og svo má sjá gotneskan, endurreisnar og barokkstíl, allt eftir því hvenær viðkomandi höll var byggð.

 

 

 

Og þessa mynd tók ég Guðrúnu Láru vatnaliljukonu til heiðurs!

 

Völundarhús í einum af görðunum við Real Alcázar

 

 

Hluti af hópnum, í smá sólbaði áður en lengra var haldið!

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Casa De Pilatos er mjög falleg andalúsísk höll upprunalega frá 16. öld en síðar var bætt við hana. Þarna eru líka alveg yndislegir garðar sem gaman er að rölta um.

 

 

 

 

Hér er mynd sem ég tók á Museo De Bellas Artes, sem er mjög fallegt safn búið merkilegum kosti.

 

Auk þessara staða sem ég hef sýnt ykkur hér fórum við og skoðuðum meðal annars Plaza De Espana, Museo Arquelógico og fleira og fleira.

 

 

Frá Seville flugum við til Madrid, þar sem við vorum í fjóra daga. Allt var þar á miklu spani og einhvern veginn var ég allt of ódugleg að taka upp myndavélina!

Madrid er örugglega mjög skemmtileg borg ef maður getur verið í rólegheitum að skoða og slappa af þess á milli. Við vorum reyndar einstaklega óheppin með hótel, þar sem að jafnaði voru svona fimm vændiskonur í andyrinu, blés inn um gluggana þannig að við sváfum undir mörgum teppum! En staðsetningin var svo sem ágæt og stutt í lestina og skemmtilegir staðir að skoða stutt frá, þessa örfáu tíma sem gafst til að rölta um utan dyra, þar sem við vorum lokuð inni á söfnum nánast allan tímann.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Við vorum heilan dag að skoða El Escorial, sem er höll um það bil 50 kílómetra frá Madrid. Í byggingu frá árinu 1563 til 1654

Philip II lét byggja El Escorial og var byggingin í senn höll, kirkja, klaustur, skjala- og bókasafn, listasafn, grafhýsi og svo frv.

 

 

 

 

Svo skrapp ég á völlinn! Sá heimaleik Real Madrid á móti öðru Madridliði, Rayo Vallicano. Það fór 3-1 fyrir Real Madrid.

 

 

Við fórum svo á nokkur söfn sem gaman var að skoða, ber þar hæst Prado safnið og Reina Sofia. Auk þess fórum við einn dag og skoðuðum mjög fallegan lítinn bæ nálægt Madrid sem heitir Alcalá Henares, en þar er einn elsti og virtasti háskóli Spánar. Þar voru líka storkar með hreiður á hverju húsþaki!

 

Næst fer maður svo til Barcelona, Toledo og allra hinna skemmtilegu borganna á Spáni sem maður á eftir...en þá held ég að ég fari bara í fjölskylduferð og skilji dönsku ferðafélagana eftir!!