Fórum í dag í gönguferð um Eskemoseskov við Sjællsø! Fínasta veður, eitthvað um 14° sól öðru hvoru en reyndar svolítil gola.

Ástþór Örn á eftir að fá sólhlíf á vagninn...á meðan er notast við þetta danska bleyjutrikk!

Lömbin sem ég sá í apríl orðin svolítið stærri!
Innst í skóginum er rosa kósí veitinga/kaffihús!
Settumst og fengum okkur smá hressingu! Við sátum nú bara á þessum bekkjum því ekki var
pláss við huggulegu borðin við húsið!!
Skál!
Ástþór Örn vaknaði í nokkrar mínútur
Stemningin þarna bara eins og í húsdýragarðinum!! Hestar, kindur og kýr (og flugur!)!!