París að vori 2007  

 

 

 

 

Fór með mömmu og pabba til Parísar í byrjun mars. Vorilmur í lofti, allt að springa út og yndislegt að rölta um göturnar, sitja úti með gott kaffi eða kalt hvítvín. Borðuðum góðan mat, drukkum góð vín og fengum okkur himneska eftirrétti. Eins og tilheyrir í svona fallegum borgum vorum við svo búin að finna okkur álitleg hús að búa í og auðvitað farin að leggja drög að næstu ferð! Hér er smá brot af myndasafninu.

 

 

 

Hótelið okkar Villa Pantheon var á ansi góðum stað í latínuhverfinu. Þarna sést Pantheon ofar í götunni og Sorbonne háskólinn var svo stutt frá líka. Úti á horni var

mjög góður matsölustaður, La Petite Périgourdine. Nálægt Pantheon er svo annar ansi góður staður La Fontaines, þar sem við fengum þá bestu confit önd sem ég hef smakkað.

 

 

La Pantheon

 

 

Í næstu götu við hótelið okkar var þessi töfrabúð. Þarna voru auglýst námskeið og alls kyns kennsluefni fyrir verðandi töframenn og konur.

Áhugasömum er bent á slóðina sem sést þarna í glugganum!

 

 

Og auðvitað var hægt að kaupa viðeigandi búninga líka

 

 

Á móti hótelinu var voðalega falleg blómabúð. Hefði bara ekki haft neitt á móti því að hafa þessa amaryllisa í vasa heima hjá mér til dæmis!

 

 

 

Vorum mjög heppin með veður, sól og blíða utan einn rigningarmorgun.

 

 

 

Vorum enga stund að rölta niður að Notre Dame.

 

 

 

Hægt að verja dágóðum tíma í að skoða Notre Dame að utan. Góð upprifjun í táknfræðinni og biblíusögunum.

 

 

Fallegi rósaglugginn

 

 

 

 

Fyrsta daginn röltum við um og fékk smá endurmenntunarnámskeið hjá vana Parísarfólkinu, enda ekki komið til Parísar í tæp tíu ár.

Settumst á Le Jardin de Thé rétt hjá Pompidousafninu þar sem ég fékk það besta sítrónute sem ég hef smakkað.

 

 

Við feðgin við Pompidousafnið. Okkur fannst svolítið sniðug lesningin þarna á bak við okkur:

"An artist is never ahead of his time - but most people are far behind theirs"

 

 

 

Á leiðinni heim í síðdegisrökkrinu

 

 

Löbbuðum framhjá þessari orkideubúð. Voru hver annarri fallegri og enn langaði okkur mömmu að vera ekki

nema lestarferð að heiman!

 

 

 

Það er eiginlega alveg sama af hverju maður tekur mynd í París, allt svo fallegt!

 

 

 

Notalegt að setjast og fá sér café creme og njóta lífsins. Alls staðar var setið úti og mér skildist að ekki mætti búast

við páskahreti eða öðrum uppákomum...heldur bara notalegu vori og svo sumri!

 

 

 

Á röltinu rákumst við á þetta "par". Gamli ítalski Fiatinn verður eitthvað svo ógurlega lítinn við hliðina á þessum japanska jeppa...

þá er nú meiri sjarmi við Fiatinn er það ekki?!

 

 

 

 

 

Trén farin að blómstra

 

 

Í Mýrinni sá ég þessa glugga sem ég hefði verið meira en til í að eiga heima fyrir innan

 

 

Settumst á kaffihús við Place des Vosges gegnt þessum fallega garði sem helgaður er Louis þrettánda (nú eða Loðvík!)

 

 

Þar rétt hjá voru líka falleg gallerí sem gaman var að líta inn í

 

 

 

 

Og þar ekki svo langt frá var einn af þó nokkrum ostrusölum. Ég myndi nú láta svoleiðis eftir mér ansi oft ef ég byggi í París.

 

 

En svo fór að rigna! Við settumst því inn á kaffihús við Bastillutorgið.

 

 

Við heppin að geta bara hangið inni á kaffihúsinu í rigningunni sötrandi Kir Royal! Á föstudeginum hugsuðum við

með tilhlökkun til kvöldsins. Ein af aðalástæðum fyrir því að við skelltum okkur til Parísar einmitt núna var að Paco De Lucia

var þar með tónleika 9. mars.

 

 

 

Og ekki urðum við fyrir vonbrigðum. Búin að hafa það á stefnuskránni í mörg ár að komast á tónleika með

þessum snillingi. Og þvílíkt kvöld, bara stórkostlegt. Þarna fékk maður tækifæri til að fara yfir flamencosporin sem

ég lærði einhvern tímann í huganum og æfa taktinn og hrynjandann í klappinu. Paco sjálfur verður bara betri og betri og

hljómsveitin sem var með var í einu orði sagt frábær.

 

 

Á morgungöngu í blíðunni.

 

 

Óskaplega róleg stemmning yfir bænum þennan morgun. Nánast engir bílar á ferðinni og við viss um að allir Parísarbúar svæfu út...

 

 

 

 

...en það var ekki rétt ályktað hjá okkur. Vegna Parísarhlaups var búið að loka stórum hluta borgarinnar fyrir umferð og ansi margir íbúar tóku þátt í hlaupinu.

Við vorum þó nokkur mörg á hliðarlínunni sem fylgdumst með þessu duglega fólki koma í þúsundum þarna fram hjá okkur og stúlkur berjandi trommur hvöttu einnig alla áfram af krafti.

 

 

 

Magnolíutré að byrja að blómstra...gat því miður ekki tekið nærmyndir þar sem hlaupahópurinn var á milli mín og fallega trésins.

 

 

 

 

Ég að reyna að leika Parísardömu!

 

 

 

Þær fara nú betur á kaffihúsum en í borgarhlaupi er það ekki?!?! Í huganum var ég að sjálfsögðu ekki í töfflunum!!!!

 

 

 

Setið í sólinni...um leið og við fengum fréttir af roki og slyddu heima á Íslandi

 

 

 

Mamma við Pont Neuf

 

 

 

 

Mamma og pabbi á Place de Ville. Þar er þessi fallega hringekja og varð okkur alltaf hugsað til Ástþórs Arnar þegar

við röltum þarna fram hjá

 

 

 

Karla-Magnús í öllu sínu veldi rétt við ráðhúsið. Þegar Ástþór Örn skoðaði myndirnar spurði

hann mig hvaða frosnu menn þetta væru!!!

 

 

 

"frosna" fólkið aldrei með leiðindi þegar á að mynda það!

 

 

 

 

 

 

Prúður hundur á kaffihúsinu hjá góða pabbanum eða Au Pére Tranquille!

 

 

 

 

Við settumst þar og fengum okkur hádegismat.

 

 

Troðfullt og skemmtilegt kaffihús ekki langt frá Les Halles

 

 

 

Concorde...og Effeilturninn þarna í baksýn

 

 

 

Á Champs Elysées með Sigurbogann í baksýn

 

 

 

 

Ég fór í göngutúr á mándagsmorguninn og sá þennan hugrakka bogarstarfsmann snyrta tré rétt við Notre Dame

 

 

 

 

Þá er bara að fara að skipuleggja næstu ferð til Parísar, sem verður vonandi farin sem fyrst og er Ástþór Örn nú þegar búinn að skrá sig með!