Vinna og gaman!
Um daginn lagði ég upp í ferð til Noregs og Svíþjóðar. Í Noregi var ég að afla gagna vegna skólaverkefnisins míns en í Svíþjóð var ég í nokkra daga hjá Guðrúnu Láru og fjölskyldu í fríi...sem ég get ekki líst hvað var yndislegt. Ferðin byrjaði nú hálf eitthvað mis...sérstaklega þar sem ég fæ magapínu yfir smáu stundum. Alla vega voru flugvirkjar að hrella mig og aðra ferðalanga með verkfalli sem leystist svo...í bili skilst mér. Ég komst því til Stokkhólms og þaðan til Oslóar. Við fyrstu kynni leist mér ekkert á Osló, ótrúlega kalt og ég bara vissi ekki hvað snéri upp né niður. Þar að auki fannst mér ég bara alveg rugluð að vera að þykjast eitthvað geta farið í svona rannsóknar-vinnuferð!!! En allt gekk þetta ágætlega og ég tók borgina (það örlitla sem ég sá af henni það er) í sátt og það verður spennandi að fara að vinna með gögnin sem ég bar með mér heim. Eftir nokkra stífa daga í Noregi flaug ég yfir til Svíþjóðar, þar sem fram undan voru góðir dagar með Guðrúnu Láru og fjölskyldu. En hér koma nokkrar myndir.

Ég bjó alveg niðri í bæ á ágætis hóteli svona miðað við krepputíma!!!
Ég var spennt að fara í morgunmatinn á hverjum degi og sjá hvað tveir búddamunkar
sem bjuggu á sama stað og ég áttu mikið af fínum hlífðarfötum í fallega appelsínugula litnum þeirra.
Og talandi um hlífðarföt. Eftir að hafa verið í Osló í hálfan dag í 14° frosti nokkuð vel klædd á minn
mælikvarða (sem sagt, úlpa, húfa, vettlingar, ullarsokkar...) fór ég og keypti mér forláta ullarbuxur
og leið mun betur það sem eftir lifði ferðar. Heppnin var líka með mér þar sem ég fékk 20% afslátt þar sem fyrsta gull Norðmanna kom í höfn
þennan dag. Búðin bauð 10% fyrir brons, 15% fyrir silfur og 20% fyrir gull!
Ég komst jafnframt að því að ég og margir erum alltaf allt og illa klædd hér á klakanum. Ekki það að hér höfum við svo ansi fínar úlpur með miðstöð og á fjórum hjólum
en það var ótrúlega gott að geta gengið allra ferða minna vel klædd.

Kaffið á hótelinu var það versta sem ég hef smakkað þannig að ég reyndi það ekki nema einu sinni.
En áður en ég lagðist yfir skjölin á morgnana leyfði ég mér þann munað (það kostar allt maaargar krónur í Osló!!) að fá mér einn
kaffi á Kaffebrenneriet, sem lagaði algera andstæðu hótelkaffisins. Fyrsta morgunin þegar ég datt þarna inn (þessir kaffistaðir út um allt en þessi var
rétt við Stórþingið) var ég að hugsa um að vera bara þarna allan tímann inni í hlýjunni að drekka kaffi, lesa blöð og hlusta á
notalega tónlist. En þessi fyrsti kaffibolli þar og notaleg stemmning náði í það minnsta að eyða megninu af þeim fordómum
sem ég hafði eitthvað bitið í mig þegar ég kom út af Gardermoen flugvellinum deginum á undan!!

Annað ljónanna sem gætir Stórþingsins

Sjálft þinghúsið, þar á móti var þingskjalasafnið sem ég vann á einn dag

Einmitt hér!

Útsýnið út um gluggann minn á safninu, horft út á Akersgötu

Ég sjálf...hálflúin eitthvað...en ekki kalt!

Fyrir framan þinghúsið er grænt gras og kósíheit á sumrin skilst mér en þar er núna skautasvell og stuð þar sem
glumdi alltaf kántrýtónlist þegar ég rölti þarna fram hjá.

Ég er alltaf voða veik fyrir styttum af dýramæðginum/mæðgum og
tók því að sjálfsögðu mynd af þessum í safnið

Verið að pússa svellið...undir kántrýtaktinum


Þjóðleikhúsið. Ég gerð fátt annað en að hanga yfir skjölum,
þó gaf ég mér tíma til að fara á Nasjonalmuseet og var það
alveg ómissandi...þannig að nú hefur maður meðal annars séð hið títt stolna Óp
og fleiri verk eftir Munch.

Hér má svo sjá ríkisskjalasafni sem er við Sognsvann lestarstöðina
en þangað tók ég T-banann þeirra og keyrði meðal annars í gegnum
hverfið Tåsen sem mér þótti hljóma svo notalega...að búa í Tásunni!!!

Þarna var nóg af snjó og fólk gekk um allt á gönguskíðum

Og í Utanríkisráðuneytinu biðu mín þó nokkrar skjalamöppur.
Ætli ég hafi ekki kynnst ljósritunarvélinni þar best af öllum í þessari ferð minni!!!!

Á heimleið úr ráðuneytinu á síðasta deginum mínum í Osló

Gekk í gegnum hallargarðinn á leiðinni á hótelið.

Og þá var ferðinni heitið til þeirra Konsulenta í Vänge, þar sem var líka nóg af snjó!
Það sem var gaman að eyða nokkrum dögum hjá íbúum þessa sæta húss. Ástþór Örn er farinn að þrýsta
mjög svo á að komast í heimsókn til þeirra líka...vonandi verður það nú einhvern tímann.
Takk elsku Guðrún Lára, Einar Þór, María, Hugi og Baldur Tumi fyrir góða daga.


Guðrún Lára tók lagið fyrir mig
a
Og elsku Baldur Tumi, guðsonur minn gladdi mig með frumsömdum tónum!a

Þar sem við sátum í rólegheitum inni í stofu kom Guðrún Lára auga á
spætu uppi í tré, ég tók mynd...þið sjáið hana kannski illa en þetta var
Villi spæta mættur!

Yngsta og elsta dúllan í systkinahópnum á Konsulentvagen, Baldur Tumi og María

Og flottustu bræðurnir, Baldur Tumi og Hugi

Við vinkonurnar drifum okkur í menningarreisu til Stokkhólms.
Fórum á þessa sýningu á Nationalmuseum og ég held að ég hefði
ekki getað verið heppnari. Sýningin var falleg og ekki var verra að
bæta nokkrum "Rembröndtum" við í minningarhólfið.
