| Loksins komnar nýjar myndir úr framköllun! | |||
|
|
|||
|
|
Birkerød er voða notalegur bær, finnst okkur alla vega! Hér er Sigurður Ágúst fyrir framan Gamla prestsbæinn, sem er listsýningarsalur. Þetta hús hefur reyndar aldrei þjónað þeim tilgangi að vera prestsbústaður en húsið er aftur á móti byggt þar sem gamli bærinn var sem brann. Já já, maður er meira að segja farinn að læra aðeins um sögu bæjarins!! |
||
|
Hér er ég við kirkjuna...eitthvað hef ég Sigurð grunaðan um að halla myndavélinni þegar myndin var tekin, því ég veit ekki til þess að kirkjan halli svona voðalega þó gömul sé.
|
|
||
![]() .
|
Mikið af fallegum gömlum húsum í gamla bænum, sem við hjólum eða löbbum í gegnum á leiðinni í bæinn. |
||
|
|
Við heima í rólegheitum. Þið verðið að venjast þessu "mótívi" þegar við erum saman á myndum, þ.e. við sitjandi í sófanum því
þannig get ég látið myndavélina taka sjálfa svo vel takist!!! |
||
|
Sigurður komst fljótt að því að ég er ekki svo góð að setja saman húsgögn...enda sannaði ég það nú um árið með Ásu frænku þegar kommóðan góða var "sett saman"! Ég setti þó saman rúmborð og eitthvað af þessum skúffum sem þarna liggja á gólfinu...undir eftirliti frá Sigurði þó!! En þarna er Sigurður Ágúst að setja saman stofuborðið og skúffurnar tilheyra svo smá kommóðu sem er við skrifborðið okkar. |
|
||
|
|
|
Borðið fína komið saman og sómir sér vel í stofunni! Nú vantar ekki svo mikið inn til okkar, bara svona gera þetta heimilislegra - hengja upp myndir og svo frv. |
|
|
Hér er ég að elda. Ég hef nú eiginlega misst starfið sem "chef" í okkar eldhúsi þar sem Sigurður hefur (loksins!!) uppgötvað ánægjuna af því að elda!! Ég er því meira bara svona í að vaska upp og bíða eftir matnum!
Og í gær fór ég í klippingu og lét konu hér í bæ taka af mér alla peningana! En núna er ég með þó nokkuð styttra hár og það er bara voða fínt.
|
|
||
|
Sigurður Ágúst við tölvuna! | ||
![]() |
Þar sem nýja Metro kerfið er hér á allra vörum og þið heima víst eitthvað búin að fá að heyra af hrakförum þess líka þá mátti ég til að sýna ykkur þessa mynd! En hér er loksins búið að taka stillansa og rusl af Kongens Nytorv, sem hefur varla verið hægt að fara um í nokkur ár og til dæmis hefur þetta Danske Bank hús nú ekki sést í nokkur ár!
Undir glerpíramítunum er Metro stöðin við Kongens Nytorv. Sigurður Ágúst við einn píramítann! |
||