London í júlí 2005

 

 

 

 

Þegar ég skoðaði myndirnar sem teknar voru í ferðinni sá ég strax að þær voru svolítið ólíkar þeim sem

venjulega fylgja ferðasögum. Skýringin er einföld! Ferðirnar eru venjulega að mestu sýndar út frá mínum bæjardyrum þar sem

Sigurður Ágúst er ekki duglegur að taka myndir. Í London sá ég svolítið nýja hlið á manninum og eins og blóm hafa til dæmis oft kveikt myndatökuþörfina í mér var það hið rótgróna lið Arsenal sem snerti þessa taug í honum. Sigurður varð þannig ótrúlega glaður þegar hann á leiðinni af flugvellinum komst að því að við vorum að fara að búa í rótgrónu Arsenalhverfi og gestgjafar okkur væru þannig sjálfkrafa í hans liði!

Fyrsta morguninn fórum við samferða Chris í bæinn og tók hann ekki annað í mál en að koma við og skoða staðinn þar sem nýr leikvangur Arsenal er að rísa og verður vígður haustið 2006. Þar sem Sigurður gekk um svæðið, myndaði og fannst hann bara næstum kominn "heim" skildi ég minna og minna...svona kannski eins og honum líður þegar ég ver endalausum tíma í að ná góðri mynd af bóndarós!!!

 

 

 

 

 

Og auðvitað var svo komið við á gamla Highbury!

 

 

 

Og þeir Sigurður Ágúst og Chris tóku ekki annað í mál en að við hjónin fengjum tekna mynd af okkur

við aðalinnganginn á Highbury!

 

 

 

Mér fannst þetta fótboltaæði allt hið skondnasta mál, sérstaklega þegar ég sá hvað þetta var þeim Sigurði og Chris mikið hjartans mál...

þá skildi ég bara ekki baun! Mér skilst að stefnan hjá Sigurði Ágústi sé að ná leik á Higbury næsta vetur, sem er sá síðasti þar og svo leik árið á eftir á hinum nýja leikvangi.

 

 

 

Ég fann mig betur á Trafalgar torgi þar sem ferðinni var heitið National Gallery á sýningu á verkum George Stubbs.

 

 

 

 

Þaðan röltuð við í Covent Garden, sem er mikill uppáhaldsstaður. Þar bauð ég Sigurði á krána "mína"

"Punch and Judy".

 

 

 

Atið var svolítið meira á Leicester Square

 

 

 

Og við drifum okkur í rólega stemningu í Carnaby

 

 

 

Sá þetta hús í Carnaby Street sem ég væri alveg til í að eiga eins og eina íbúð í.

 

 

 

Á Carnaby Street fann ég einmitt dásamlega glimmer og palíetubúð...verð að hemja mig að

sauma ekki glit í öll fötin mín!!!!

 

 

 

Við Big Ben og þarna má líka sjá London Eye sem við ákváðum að kíkja bara betur á næst

 

 

 

Sigurður Ágúst við Margrétarkirkjuna í Westminster

 

 

 

Brjálað að gera við að mala niður tré. Svona græju hefði pabbi sjálfsagt viljað eiga í den!!!

 

 

 

Ég tók að mér fararstjórn á Tate Modern og fórst það ægilega illa úr hendi þar sem ég gekk í öfuga átt og

reyndi að komast inn í einhverja verksmiðju alveg handviss um að það væri safnið (sem er jú í húsi sem eitt sinn var rafstöð!).

En við komumst loksins á réttan stað.

 

 

 

Á safninu stendur nú yfir stór yfirlitssýning á verkum Fridu Kahlo og önnur mjög skemmtileg (sem sérstaklega var

heimsótt fyrir Sigurð Ágúst) þar sem mest áhersla er lögð á nýja miðla í listum á áttunda áratug síðustu aldar.

 


 

Túrbínusalurinn allt öðruvísi en síðast.

 

 

 

Eftir að hafa skoðað Fridu Kahlo settumst við á kaffistofuna. Kaffið er svo gott!

 

 

 

Ansi gott að setjast og hvíla sig svolítið og njóta útsýnisins

 

 

 

Í nýrri arsenaltreyju að gæða sér á samloku

 

 

 

 

Frá Tate Modern héldum við niður í miðbæ með stuttri viðkomu við Buckingham höll.

 

 

 

 

 

Mér fannst þetta ítalska par svo fyndið...aðallega hvað konan var svakalega spennt yfir þessari myndatöku með 

ensku löggunum!

 

 

 

Við hjónin vorum sammála um að það væri ekkert að því að þeysast um á þessu Triumph hjóli.

Var fyrir innan girðinguna við Buckingham þannig að hver veit nema að Karl og Kamilla þeysist um göturnar á þessu

á kvöldin!?!

 

 

 

Seinna um daginn settumst við í garðinn við Cavendish Sq. Paul og Toni búa einmitt við þennan garð, 

en eyða mestum tímanum í sveitinni þannig að við hittum þau ekki í þessari ferð. 

 

 

 

Picnicstemning með nesti frá Carluccios

 

 

 

Sigurður valdi sér í eftirrétt dýrindis sítrónuköku

 

 

 

Ótrúlega notalegt að sitja þarna fjarri öllum látunum í næstu götum

 

 

 

 

 

Þessi litla dúlla þvertók fyrir að láta keyra sig í kerru, fór bara hægar yfir og naut lífsins!

 

 

 

 

Á leiðinni heim styttum við okkur leið í gegnum þennan garð...

 

 

 

...en það var komið að Sigurði að villast!! Og leiðin í gegnum skóginn var ekki alveg eins sniðug og haldið var í fyrstu

 

 

 

Og við enduðum bara við einhvern tennisvöll og þurftum að snúa við og velja svolítið aðra og einfaldari 

leið í gegnum garðinn!! En þessi aukagöngutúr var svona tíu sinnum styttri en sá sem ég hafði boðið ferðafélaganum

upp á um morguninn.

 

 

 

Og við komumst heim á endanum :o)

 

 

 

Hér er Rosie! Stórskemmtileg bullmastiff tík sem Chris og Anne eiga.

 

 

 

 

 

Í garðinum þeirra býr líka einhleypur smáfugl...sem þó er greinilega mjög vinsæll því hann var sjaldan heima.

 

 

Og hér er hann George, aldursforsetinn á heimilinnu en hann er tæplega sjötugur. Þau hafa átt hann í rúm

þrjátíu ár!

 

 

Að borða brauðsneið!

 

 

Fórum og skoðuðum Kenwood house síðasta daginn.

 

 

Stilltum okkur upp í garðinum fyrir framan, þarna sést London í mistrinu á bak við okkur. Kvöldið áður höfðum

við einmitt farið í picnic með Chris, Anne, Jo (dóttur þeirra, sem ég vona að ég hafi náð að gabba í heimsókn til Íslands!!) og

Paul, vini þeirra. Þá sátum við aðeins lengra frá húsinu borðuðum á okkur gat, drukkum kampavín og hlustuðum á tónleika

með Ibrahim Ferrer sem jafnan er kenndur við Buena Vista Social Club!

 

Á sunnudagskvöldinu var svo haldið heim til Íslands eftir mjög vel heppnaða ferð, farin að hlakka til næstu Londonferðar...hvenær

sem hún verður svo farin!!