London í maí 2009

 

Við Ástþór Örn skelltum okkur til London með afa Ástþóri og ömmu Kötu upp úr miðjum maí. Þar áttum við stórskemmtilega viku og náðum að sjá og gera heilmargt.

Röltum í hinum ýmsu bæjarhlutum, fórum á söfn, dýragarðinn, tónleika, sveitina og fleira!

Hér er heil súpa af myndum og aldrei að vita nema að við bætum nokkrum myndum úr safni ömmu og afa við bráðlega.

 

 

Við vorum í íbúð á notalegum stað í South Kensington. Ástþóri Erni fannst liggja beinast við að við myndum

bara flytja til London, svona úr því að við værum nú komin með íbúð!

 

 

 

 

Fyrsta daginn okkar skruppum við í bæinn, Ástþór Örn fékk að líta í dótabúð

við röltum í Carnaby

 

 

 

Í eigin heimi með Ben 10 umbreytiúrið, sem hefur verið ofarlega á óskalista Ástþórs Arnar í lengri tíma!

 

 

 

Nafnar stilla sér upp undir frönskum fána! Í hverfinu okkar voru nokkrir

franskir skólar, bókabúðir og fleira þannig að ég fékk svona örlitlar

sárabætur fyrir ferðina sem ég ætlaði í til Frakklands í vor!!!

Gat meira að segja æft frönskuna mína og allt :o)

 

 

 

Við vorum í nokkurra mínútna göngufæri frá National History Museum

og var það heimsótt nokkrum sinnum á þessari viku,

enda stórskemmtilegt safn.

 

 

 

Ufsagrýlurnar margar ansi ófrýnilegar

 

 

 

 

Afi Ástþór og Ástþór Örn stilla sér upp við risaeðlubeinagrind

 

 

 

 

 

 

 

Ástþór Örn var yfir sig hrifinn af safninu og fyrir áhugamannum risaeðlur

var þetta aldeilis staðurinn til að koma á!

 

 

 

Og þarna var T-Rex ljóslifandi komin og leist Ástþóri Erni ekki alveg á

blikuna á tímabili!!

 

 

 

Ástþór Örn og risaðluhreiður

 

 

Náttúrugripasafnshlutinn skoðaður líka!

 

 

Núna stendur yfir sérsýning á National Hostory Museum sem heitir Butterfly Jungle

og er nokkurs konur óður til regnskóga. Við fórum þrisvar á sýninguna

og skemmtum okkur alltaf jafn vel

 

 

Enda var þarna eitthvað fyrir alla...blóm, fiðrildi, sporðdrekar, eðlur...já og leiktæki!

 

 

  

 

 

Sum fiðrildin voru mjög mannblendin

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Fallegt kvöld í götunni okkar

 

 

Á leiðinni út að borða

 

 

 

Afi póstkassi og Ástþór Örn

 

 

 

Þessa mynd tók Ástþór Örn út um gluggann þegar við sátum og borðuðum á Carluccios. Lýsir stórborgarstemmningunni bara nokkuð vel!

 

 

Sveitaferð