London 27. febrúar - 3. mars 2004

 

Ég var nú misdugleg að taka myndir, en hér er þó eitthvað.

Komum út á föstudagskvöldi. Fórum nokkrar og fengum okkur indverskt að borða og svo var drifið sig í háttinn þar sem langur laugardagur var fram undan.

 

 

Hótelið...Columbia...eða Olympia eins og öllum leigubílsstjórunum fannst við Íslendingarnir segja!

 

 

Út um gluggann á okkar herbergi

 

 

Herbergisfélagar mínir Margrét Birna og Bryndís. Við vorum sko ekki eins og sumir ferðafélagar sem komu heim undir morgun og misstu af dagskránni! Ó nei ó nei alltaf komnar ferskar úr eldsnemma!!

 

 

Á laugardeginum drifum við okkur út um tíu. Þó nokkuð margir úr LHÍ hópnum höfðu þó verið

aðeins og lengi úti á föstudagskvöldinu og treystu sér ekki með...meira liðið. Nú jæja. Ferðinni var heitið í

Tate Modern sem er í gömlu iðnaðarhúsnæði við Thames. Myndina tók ég á leiðinni á staðinn og þarna má sjá

Pálskirkjuna.

 

 

Við villtumst aðeins á leiðinni á safnið...

 

 

En komumst þó fljótt á rétta slóð og hér er ég á Millenium brúnni með safnið í baksýn

 

 

Og hér er Margrét Birna, bekkjarsystir mín á brúnni!

 

 

Var hér að taka mynd af byggingu Sir Norman Foster...þessi sem er eins og geimskutla.

 

 

Ég skil ekki hvað kom fyrir flassið hjá mér, voða dökkt eitthvað. En þarna er Tower Bridge!

 

 

 

 

Í Túrbínusalnum á Tate Modern stendur yfir sýning/innsetningarverk Ólafs Elíassonar. Verkið er mjög flott og nýtur sín

mjög vel í salnum. Ég vissi svo sem ekki við hverju átti að búast við en sýningin hefur jú fengið

mikla umfjöllun og svo frv. En ef þið eruð að fara til London skuluð þið skella ykkur, ekki aðeins út af

þessari innsetningu Ólafs heldur eru þarna aðrar mjög skemmtilegar sýningar í gangi.

 

 

 

Undir sólinni

 

 

 

 

 

Ég elska vorið og það er ekki langt í það í London. Ég væri alveg til í að búa í þessu húsi!

 

 

 

Og þarna er eitt af bleiku trjánum að byrja að springa út.

 

 

Hluti hópsins fyrir utan Serpentine Gallery

 

 

 

Sem er einmitt staðsett í Hyde Park. Þarna má líka glitta í

Albert Memorial. Albert var einmitt stóra ást Viktoríu drottningar!

 

Eftir Tate fórum við á Saatchi safnið sem er ótrúlega flott. Maður sem á án efa eitt flottasta safn

nútímaverka sem til er. Þarna eru mikið af verkum eftir unga breska listamenn, til að mynda þá sem

hafa unnið Turner verðlaunin síðustu ár. Ég var þar einmitt beðin um að lóðsa hópinn um ákveðinn part sýningarinnar

þar sem ég var búin að vera að lesa um ákveðna listamenn fyrir ritgerð, gekk bara vel...er að hugsa um að sækja bara

um vinnu þarna!!!!

 

Laugardaginn enduðum við á ferð í Covent Garden. Það er dásamlegt að rölta um Covent Garden.

Fórum þar nokkur saman...við sem nenntum að fylgja dagskránni!!

 

 

 

Á sunnudaginn var annar stífur safnadagur. Þá byrjuðum við á að fara á Royal Academy of Arts

Þar var mjög falleg sýning í gangi á verkum Vuillard og mjög flott sýning á svolítið nýrri verkum eftir Philip Guston.

 

 

Safnið!

 

Á sunnudeginum kíktum við einnig á gallery sem er í norðaustur London og heitir Whitechapel.

Sáum þar sýningu á verkum þýsks listamanns að nafni Gerhard Richter.

Í eftirmiðdaginn fór ég svo til Toni og við fórum á frábæran tyrkneskan stað og fengum

okkur að borða. Það var ótrúlega notalegt!

 

 

 

 

Fór aðeins aftur á Tate á mánudag. Nú eftir Tate fór ég í bæinn og hitti Toni aftur. Við skelltum okkur á alveg yndislegt safn

sem er rétt hjá þar sem þau búa og heitir The Wallace Collection. Þetta er safn manns sem

var sendiherra Englands í París í byltingunni. Mjög mikið af fallegum verkum og húsið sjálft alveg guðdómlega

fallegt (því miður mátti ekki taka neinar myndir þar inni).

 

 

 

Þetta er lítið torg sem heitir St. Christophers Place og er á bak við Oxford Street

(líka eiginlega á bak við götuna sem Paul og Toni búa í). Þarna eru dásamleg

kaffíhús og svo gaman að sitja úti undir gashiturunum.

 

 

Tyrkneski staðurinn sem við fórum á á sunnudagskvöldið stendur við þetta torg en

einnig sá frábærasti ítalski staður sem ég hef farið á. Hann heitir Carluccio's.

Þið verðið að fara þarna ef þið farið til London!

Á máudagskvöldið ætluðum við Toni á bíó og svo út að borða. Hún var búin að sjá allar myndirnar sem var verið

að sýna og því áttum við eitthvað erfitt með að finna mynd...gengur bara betur næst.

Við drifum okkur því bara á staðinn sem Paul (sem var að vinna á Ítalíu) hafði skipað okkur að fara á. Einmitt

annar ítalskur staður. Þar fengum við óskaplega góðan mat að sjálfsögðu!

 

Á þriðjudaginn fór ég svo í bæinn en fékk nú fljótt "Kringluveikina" sem lýsir sér í því að maður fær mikla ónotatilfinningu

í mannþrengslunum í búðunum. En það spillti því ekki að ég fór í nokkrar þar sem fáir voru inni og keypti smá!!

Við skelltum okkur þrjár í bæinn á þriðjudeginum áður en haldið var heim, ég Bryndís og Margrét Birna. Fórum á Carluccios og eyddum svo dágóðum tíma í ansi skemmtilegri bókabúð í kjallaranum á Selfridges. Af hverju er lagt svona mikið á bækur á Íslandi?? Í London þar sem ALLT er dýrt er meira að segja hægt að kaupa ódýrar bækur.

 

 

 

 

Smá viðbót!! Hér eru tvö verk sem fæddust í skólaferðinni og sjá má á sýningunni okkar 1321

 

 

Verk Bryndísar sem er eins konar heimild um Londonarferð

 

 

Verk þriggja bekkjarsystra. Ég, Þóra og Gerla fórum í sólbað undir sól Ólafs. Margrét Birna tók einmitt

hluta af myndunum og m.a. þessa sem er lengst til hægri.