Kaupmannahöfn að vori 2004
Við hjónin skelltum okkur í síðbúna brúðkaupsferð til Kaupmannahafnar. Það var ansi notalegt að koma "heim" aftur.
Svo margt sem rifjaðist upp...ekki bara það að Danir geta verið hundleiðinlegir! Nei það rifjaðist upp hvað er hægt að hafa það ótrúlega notalegt,
að vorið er dásamlegt og svo margt fleira. Við bjuggum á góðum stað austarlega á Amager og vorum enga stund að koma okkur í bæinn. Ferðin var stutt, komum á föstudagskvöldi og fórum aftur um hádegi á mánudag.
Á laugardeginum byrjuðum við í morgunkaffi á Baresso, sem er minn kaffistaður á Strikinu. Gott að byrja daginn á Caffé Latte Grande, Croissant og Muffin! Svo röltum við og rifjuðum upp í miðbænum. Fórum svo í hádeginu á RizRaz, sem er mjög góður Miðjarðarhafsgrænmetisstaður. Eftir svolítið meira rölt fórum við heim í bað og sparifötin því ferðinni var haldið á ítalskan stað sem okkur hefur alltaf langað á. Staðurinn heitir Era Ora og er talinn vera einn besti ítalski staðurinn í heiminum. Svolítið dýr og við því ekki leyft okkur að kíkja. En svona þegar maðurinn er loks orðinn fullorðinn og þetta jú brúðkaupsferð þá ákvað ég að panta hjá þeim borð. Sjáum ekki á eftir því. Kvöldið var eiginlega hálf súrrelaiskt! Þegar komið er á staðinn er ekki tekið á móti manni með matseðli heldur er bara einn seðill í gangi og er honum skipt út vikulega, eftir því hvaða hráefni er það besta fáanlega þá og þegar. Vínseðillinn er aftur á móti svona eins góð símaskrá í meðalstóru þorpi! Í stuttu máli borðuðum við besta mat sem við höfum smakkað og biðum eiginlega eftir því að vakna af einhverjum draumi, fara fram og uppgötva að ekki er til mjólk á Cherioosið eða kaffið!!!
Á sunnudeginum vorum við komin snemma í bæinn og að sjálfsögðu var Baresso heimsótt aftur og morgunkaffið sótt og drukkið á Nikolaj Plads. Kíktum svo aðeins í Nýhöfnina. Hans Ole koma svo í bæinn og hitti okkur og saman fórum við í hádegismat á Amadeus sem er mjög notalegt kaffihús í Store Kongensgade. Eftir matinn fórum við í Lyngby, þar sem við Sigurður vorum aldeilis á heimaslóðum. Byrjuðum á að kíkja í heimsókn til Hans, sem býr á frábærum stað í Lyngby. Drifum okkur svo öll út í góða veðrið og löbbuðum upp að Frilandsmuseet. Svo var farið og drukkuð kaffi hjá Hans og borðað dýrindis danskt vínarbrauð. Enduðum svo á því að fara út að borða um kvöldið.
Já sem sagt notalegasta helgi í Köben! Erum farin að hlakka til að fara fljótt aftur. Meira að segja Sigurður viðurkenndi að hann saknaði danska sjónvarpisins og alls konar...við Hans minntum hann nú að margt af því sem hann saknaði var einmitt það sem fór mest í taugarnar á honum fyrir um það bil ári síðan ;o)
Fengum yndislegt veður alla dagana. Hér er Sigurður við Holmens Kanal
Margt um manninn á Strikinu
Við Frúarkirkjuna...þar sem brúðkaupið verður þann 14. maí n.k.
Kaupmannahöfn var öll sundurgrafin!
Og höfuðstöðvar Københavns Universitet
Ég fyrir framan háskólann, á Grábæðratorgi
Séð úr Nýhöfn. Nýja vestnorræna kulturhúsið
Nýja óperuhúsið
Svolítið mikið gerst síðan síðasta sumar
Sigurður hvílir lúin bein
Í nýhöfn. Hér bjó H.C. Andersen
Mér fannst þetta alveg frábært nafn á hárgreiðslustofu...Krudtmøllen!!!
Og að sjálfsögðu var þarna líka fótasnyrtistofa...en fóta- og hársnyrtar eru óteljandi í Danmörku!!!
Vormynd!
Sigurður með Christianshavn í baksýn
Ég fann götu sem ég væri bara alveg til í að búa í
Séð af Amagerbrúnni í vestur. Svarti kubburinn er Det Kongelige Bibliotek
Og í austurátt, Nýhöfn, óperuhúsið og fleira
Við Holmens Kanal
Og við komin í gönguferð í Lyngby. Fórum í gönguferð um konunglega Sorgenfri garðinn
Það væri ekkert að því að búa þarna!
Gömul mylla á Frilandsmuseet
Ansi gömul og falleg eikartré!
Hluti af Frilandsmusset, Bredeværket
Voða rómó hjá okkur hjónum undir einu eikartrénu
Magnolíutrén að springa út