Blómin, fuglarnir og sitt hvað fleira í sveitinni

 

Smá brot af myndasafninu sem hefur orðið til í sveitinni í sumar...

 

Sólardagur í sveitinni

 

Þið verðið bara að ímynda ykkur þrastarsöngin sem ætti að fylgja þessari mynd

 

Þessum spóa mætti ég þegar ég var í göngu um daginn, honum var ekkert gefið um rápið á mér þarna um mel rétt við ána
og fylgdi mér fast á eftir og stillit sér svo upp á steini og reyndi að gera sig eins stóran og hann gat...í þeirri von að ég léti mig hverfa.

 

Þessi ljúfa Lóa var aftur á móti alveg sama þó að ég gengi henni samferða

 

Myndin ekki skýr en það var gaman að sjá þarna saman á vaktinni jaðrakan og stelk.

 

 

Það hefur alltaf verið eitthvað af jaðrakan hér í sveitinni á sumrin en í sumar eru pörin fleiri en áður

 

Og það gladdi mig óskaplega að hitta fyrir þessa kríumömmu með unga niður við á. Eitthvað höfum við séð af kríuungum
en þeir eru mun seinna á ferðinni en venjulega og því vonandi að þeir nái að komast vel á legg áður en fer að hausta.

 

Maríuerlurnar eru hér í hundraðatali og gaman að fylgjast með þeim skottast hér á tröppunum hjá okkur

 

Þessi þúfutittlingsungi var svo ljúfur að stilla sér upp á mynd. Hann þáði samt ekki boð um að líta inn til okkar!

 

Eftir því sem trjánum fjölgar í sveitinni fjölgar smáfuglunum líka okkur til mikillar gleði

 

xxxxxxxxx

Brönugrösin svo falleg...ef ég væri blómálfur myndi ég alveg vilja búa í svona brönugrasi og eiga búning sem væri í stíl við þessi fallegu grös

 

Veisla!

 

Maríustakkur niður við á

 

Lindadúnurtin er meira áberandi í ár hér í sveitinni en áður...nema að ég hafi bara ekki tekið eftir henni, það má líka vel vera

 

Engjarós

 

Og Brennisóleyin breiðir hér úr sér...hestunum til mæðu

 

Krossmaðran sem er ekki alveg eins útbreidd og gulmaðran. Mig minnir að rætur krossmöðru hafi verið notaðar hér fyrr á öldum
til að lita klæði rauð...eitthvað hefur þurft af krossmöðru í það þar sem ræturnar eru afskaplega fíngerðar.

 

Hér blómstraði reynitré í fyrsta skipti í vor. Hér eru þau farin að fölna svolítið þó

 

Og hér eru blómin fallin og væntanlega munu rauðu reyniberin skreyta hér haustið í sveitinni

 

Smákönglar á greni

 

Ég hef farið í nokkra göngutúra og safnað mér jurtum og blómum í teforða vetrarins. Hér er smá hluti af vallhumalsuppskerunni

 

Léttir í töfrabirtu

 

Og Neisti og Dufgus á leið undir regnboga

 

Tunglskinssumarnótt í sveitinni

 

Mér finnst þetta ein fallegasta myndin í sumaralbúminu mínu

 

Og svona eru sumarkvöldin ansi oft...fátt fallegra held ég bara