Gleðileg jól!

 

Við höfðum það aldeilis gott á aðfangadagskvöld! Borðuðum á okkur gat, opnuðum pakka, lásum jólakortin og fleira. Sigurður las svo fram eftir í bók, en ég steinsofnaði!

Fullt af pökkum! Allir svo góðir að nenna að vera senda okkur "útlendingunum" pakka!

 

Nóg að gera í eldamennskunni! Við vorum með Hamborgarhrygg og alls konar gott meðlæti.

Mér sýnist Sigurður nú ekkert rosa glaður með að ég sé að trufla hann!!

 

 

Svanhildur bíður eftir forréttinum, sem var rosa góður humar frá Íslandi!!

 

 

Hér eru nokkrar myndir sem við tókum í dag, aðfangadag...pakkarnir ekki komnir undir tréð þá en eru það núna!! Við reynum að vera dugleg að setja inn myndir um jólin handa ykkur að skoða.

 

 

 

 

 

 

 

  

 

Það sést nú voða illa skrautið sem við erum búin að setja í gluggann og svo er líka einhver ósýnilegi-leikur í gangi hjá litlum óróum sem hanga í glugganum!!