Jólin 2004
Við héldum jólin í Langagerðinu og áttum ansi notalegt kvöld. Borðuðum á okkur gat, opnuðum pakka og höfðum það ansi gott. Ástþór Örn var hinn prúðasti og tók öllu með ró. Ætli æsingurinn verði ekki meiri að ári!!
Ástþór Örn kominn í jólafötin
Skoða skrautið á trénu og pakkana
Ástþór Örn hefur mikinn áhuga á eldamennsku og var því ansi glaður með eldavélina
frá mömmu og pabba
Og ekki vakti grafan frá ömmu Kötu og afa Ástþóri minni lukku
Fjölskyldumyndin!!
Ris a l´amande í miklu uppáhaldi
Fékk líka ansi fína svuntu til að vera í yfir pottunum!!
Á jóladag var mikil spenna hvort að allt dótið væri enn í stofunni!!!
Það var þar allt saman sem betur fer!!