Hvíta íbúðin!!

 

Allt að gerast í íbúðinni okkar þessa dagana. Við búin að vera að mála og ditta að hinu og þessu, gengið bara vel. Mömmu fannst þetta nú heldur hvítt hjá okkur...einna líkast sýningarsal en það verður gaman að skreyta með öllu fíneríinu sem enn bíður í kössum!

 

 

Ég trúði því varla að ég væri farin að vaska upp...hélt að enn væru einhverjar vikur í það!

 

 

En eldhúsið nokkurn veginn klárt og því hægt að byrja að raða inn í skápa. Í gær gat ég því boðið Vigdísi upp

á kalt sódavatn úr glasi! Já og smá súkkulaði í skál!!

 

Þetta hefur aðeins breyst!

 

Í þessari viku er verið að pússa gólfin, það er svo stefnan að renna einni umferð yfir allt

og þá er bara hægt að byrja að koma sér fyrir!