Hönnunarsafnið var rétt hjá okkur. Þangað fór ég á laugardaginn. Á safninu stendur yfir skemmtileg sýning á

verkum Majo Isola sem meðal annars hannaði mikið af efnum fyrir Marimekko. Ég ætlaði á fjögur

söfn þennan dag en náði bara tveimur, þessu og Nýlistasafninu.

 

 

 

Á sunnudeginum fórum við Valla í siglingu um eyjarnar í kringum Helsinki og fengum einnig aðeins að sjá Helsinki frá

öðru sjónarhorni. Hér siglum við fram hjá Eira sem er mjög fallegt hverfi.

 

 

 

Margir úti að sigla í góða veðrinu

 

 

Gamalt víkingaskip á ferðinni innan um skúturnar

 

 

Eftir siglinguna keyptum við okkur fullt af jarðarberjum og settumst í Esplanadengarðinn

 

 

Mér varð hugsað til Ástþórs Arnar þegar ég sá að í boði var ferð á pony um garðinn

 

 

 

Á sunnudeginum fórum við líka og skoðuðum Temppeliaukio kirkjuna í Töölö. Hún var byggð 1968-1969.

 

 

 

 

Eftir heimsókn í Temppeliaukio kirkjuna fórum við og skoðuðum botaniska garðinn.

Þar hefði ég gjarnan viljað taka svolítið af afleggjurum!!!!

 

 

 

Elsta glerhúsið í garðinum, frá 1829.

 

 

 

Þið getið ímyndað ykkur hvað verður fallegt þegar þessar bóndarósir verða allar sprungnar út

 

 

Ilmandi hansarós. Það var notalegt að koma heim og sjá að hansarósin fyrir framan svalirnar hjá okkur

er farin að blómstra og ég hangi á svölunum til að finna ilminn af þeim!!

 

 

Himneskar vatnaliljur! Mér varð hugsað til Guðrúnar Láru :o)

 

 

Og enn ein styttan. Mér fannst þessi svo falleg.