Út um dyr dómkirkjunnar sést háskólabókasafnið
Það var einmitt hinn þýski Engel sem teiknaði háskólabókasafnið, sem og fleiri byggingar. Flestar
opinberar byggingar í borginni eru byggðar í nýklassískum stíl og margar áþekkar hver annarri.
Á miðvikudeginum vorum við boðnar í boð til sendiherrahjónanna. Það var mjög fínt.
Eftir boðið fórum við í heimsókn til Meeri æskuvinkonu ömmu, sem býr við þennan japanska garð.
Sjáið þið ekki drekann?!
Þessi garður hentaði vel blómanördi eins og mér!
Tré faðmað að finnskum sið!
Á fimmtudeginum fórum við í Suominlinna sem er eyja fyrir utan Helsinki. Það tekur ekki nema örfáar mínútur að sigla þangað.
Útsýnið til Helsinki mjög fallegt úr ferjunni.
Komin til Suominlinna. Á eynni er mikið virki sem byggt var fyrr á öldum og var eyjan nokkurs konar varnarveggur fyrir
borgina.
Valla dáist að sírenunum
Ég stilli mér upp fyrir framan kirkjuna í Suominlinna
Finnarnir skildu ekkert í þessum blómaáhuga okkar!! Enda vanir þessu öllu saman.
Helsinki frá Suominlinna.
Á föstudeginum fórum við í boð til frænda okkar og konunnar hans, Mauno og Sirku (til hægri á myndinni).
Amma stendur í miðjunni og við hlið hennar Bendti frændi.
Þetta tré var í garðinum hjá Mauno og Sirku. Ótrúlega fallegt!
Náði fallegri mynd í skýjasafnið
Rétt hjá hótelinu okkar var Vanha kirkjan, eða gamla kirkjan. Hún er afskaplega falleg og notalegt
að sitja í garðinum fyrir framan hana.
Inngangurinn í Vanha garðinn. Þarna settist ég gjarnan í rólegheitum og sötraði kaffi og horfði út í loftið eða las.
Og annar garður rétt hjá okkur