Helsinki 13. - 20. júní 2005
Rétt eins og hér heima líður vika í Helsinki ansi hratt! Skoðuðum heilmikið og höfðum það notalegt. Ég hlakka til að bjóða þeim feðgum með til Helsinki sem fyrst.
Ég fór á mjög vel heppnaða tónleika með Crosby, Stills og Nash, borðaði ómælt magn af piiraka, uppgötvaði að finnskan er mér hulin ráðgáta...þó ég kunni svona þrisvar sinnum meira núna en áður en ég fór!!
Fyrsta daginn fórum við í göngutúr og rákumst á margt skemmtilegt, eins og þennan fallega garð. Hér eru amma og Valla
Sírenur í blóma
Ekki var ætlunin að taka listræna mynd! Ég hélt að mín seina myndavél hefði verið búin að smella af en svo hefur
ekki verið og þessi fína mynd var útkoman!!
Við bjuggum á góðum stað í miðbænum, Hotelli Anna. Hér er útsýnið út um gluggann minn.
Annan daginn skoðuðum við þinghúsið
Röltum því næst niður Pohjois Esplanaden. Í húsinu á myndinni er meðal annars íslenska sendiráðið
Finnar eru stoltir meðlimir í Evrópubandalaginu
Þegar ég var stelpa langaði mig svolítið að prófa að vera hafmeyja! Þessi stytta kveikti því svolítið í mér!!
Esplanaden garðurinn við Pohjois Esplanaden
Og komin að markaðstorginu. Þar hefði ég getað keypt svo mikið af blómum, þvílík dásemd. Ég fékk ansi mikla
Danmerkurheimþrá!
Á móti markaðstorginu er ráðhúsið og fleiri falleg hús sem hýsa skrifstofur Helsinkiborgar
Fórum og skoðuðum rússnesku rétttrúnaðarkirkjuna
Ég ætlaði reyndar aldrei að komast upp að henni því á leiðinni voru svo falleg blóm!
Eftir heimsókn í rétttrúnaðarkirkjuna var rölt niður að höfn. Í húsunum þarna í fjarska fórum við
svo í boð til sendiherrahjónanna á miðvikudeginum.
Og þá lá leiðin í dómkirkjuna. Kirkjan var teiknuð af Engel og byggð á árunum 1830 – 1852.
Í kirkjunni var nemandi í orgelleik sem ég get ekki sagt annað en hafi skemmt gestum...
en æfingin skapar meistarann og hann verður örugglega góður einn daginn!!!