Áttum hér notalegasta gamlárskvöld...þó ekkert væri skaupið!!! Það vara ágætt að vita að verið var að taka það upp heima á Íslandi. Hér var mikið sprengt og Danirnir hafa þessi áramótin aldeilis opnað budduna þegar kom að flugeldakaupum. Við horfðum nú bara á ljósadýrðina hér út um gluggann, enda 11 stiga frost úti og Sigurður með kvefflensu. En við áttum mjög gott kvöld...höfum ekki þorað annað en að njóta þessa jólafríss alveg út í ystu æsar, svona eftir öll varnaðarorðin í mörgum jólakortum þar sem við vorum vöruð við að svona kósí-rólegheitarjól kæmu víst aldrei aftur!!!!!!

Við að fara að borða forréttinn!

Þið fáið bara svona matarmyndir!!!! En hér er ég alla vega að skera áramótaöndina!

Við keyptum aldeilis köttinn í sekknum er við fjárfestum í þessum knöllum!! Litu ágætlega út en alveg til skammar innihaldið; illa krumpuð kóróna, danskur málsháttur sem bara snérust um peninga...vill maður nú ekki heyra eitthvað annað á gamlárskvöld!? Jú og svo svakalega lítil plastfígúrur sem þegar vel voru skoðaðar sást að voru skákmenn. En öndin og allt meðlætið bragðaðist alveg rosalega vel. Núna vorum við með svo kallaða Barberie önd sem er svona aðeins dekkri og bragðmeiri en Peking önd...svona fyrir þá sem hafa áhuga!

Sigurður Ágúst var nú eiginlega hálf lasinn, með einhverja kvefpest og ég varð því að halda uppi öllu stuðinu!!