England júní 2004

 

 

Í byrjun júní fórum við Sigurður Ágúst til Englands. Ferðin búin að vera á dagskrá í all nokkra mánuði,

brúðargjöf frá Toni og Paul.

Loksins drifum við okkur og áttum þar notalega daga í sveitinni á Suður Englandi.

 

 

 

 

Sigurður Ágúst úti í góða veðrinu!

 

 

Ég og blómin

 

 

Gamall brunnur fyrir utan húsið

 

 

Sigurður Ágúst að horfa á England vinna Ísland í fótbolta!!

 

 

Sigurður Ágúst lét sveitatískuna hafa áhrif á sig og fékk sér Panama-hatt í herrafataversluninni í þorpinu!!

 

 

Spilað var Okay af miklum krafti! Okay er tyrkneskt stórskemmtilegt spil...nema hvað ég hef aldrei verið jafn óheppin

á ævinni í neinu spili, kannski viðeigandi þar sem þetta var eiginlega brúðkaupsferðin!!

 

 

Ef vel er athugað sést þarna fasani fyrir miðri mynd. Fasaninn mætti oft í heimsókn

með konurnar sínar tvær! Auk þess eru tíðir gestir mandarín endur auk þess sem við sáum uglu!

 

 

 

Séð inn í skóg

 

 

Í gönguferð í skóginum

 

       

 

 

 

Íkornarnir komu við og fengu sér hnetur!

 

 

Stökkva þarna um! Sjáið hann þarna til hægri!!

 

 

Sigurður Ágúst niður við tjörnina sem var verið að fylla aftur eftir að hafa verið hreinsuð. 

Tjörnin er venjulega full af gullfiskum, sem færðu sig yfir í stór ker á meðan vorhreingerningunni stóð.

Á föstudeginum fórum við með svolítið af gullfiskum og færðum nágrannakonunni henni Rosemary, 86 ára!

Hún býr þarna nálægt ásamt fullt af hvítummm dúfum, fjárhundi og þó nokkrum páfuglum. 

 

 

Ég að róla!

 

 

Og nokkrar blómamyndir verða nú að fá að fylgja með! Ég komst einmitt að því að því að þetta

blóm sem kallast bóndarós á íslensku og dönsku er ekki rós! Já alltaf lærir maður eitthvað nýtt.

 

 

 

fleiri myndir hér