Elliðaárdalur í lok febrúar

Ástþór Örn náði þessari frábæru mynd af heldur spenntur hundum á leið í göngutúr!
Við sóttum þær stöllur, Pílu og Trýnu í Langa og röltum þaðan í dalinn



Þetta þótti Ástþóri Erni voðalega sniðugt, að ég tæki mynd af honum að taka mynd af mér!

Sólin var ekki enn búin að ná að bræða allt hrím af trjánum, voðalega fallegt



Þar sem enn er svolítill vetur er um að gera að taka með sér kakó á brúsa í svona gönguferðir!

Ástþór Örn bað um að það yrði tekin ein mynd af honun "með myndabros á vörum"!!

Þessar vinkonur voru voða fegnar því að fá smá pásu


Farin af stað aftur eftir kakóstopp


Ástþór Örn tók með sér smá ís heim þar sem hann var notaður í tilraun/smá sull!

Æ mér þykir alltaf jafn notalegt að fylgjast með andapörum! Mátti því til að mynda þetta fína par á laugardagssundi í leit
að einhverjum ævintýrum

Þessi stúfur svaf í vagninum allan tímann og er hér alveg nývaknaður og kannski að spá í hverju hann hafi nú verið að missa af!!