17. júní 
Gleðilega þjóðhátíð!! Ég reyndar bara hér í Danmörku á fyrsta þjóðhátíðardeginum á ævinni!! Verður gaman næst þegar ég verð orðinn
svolítið stærri og get farið með mömmu og pabba í bæinn í Reykjavík!
Nokkrir dagar síðan mamma hefur skrifað hér og sett myndir, en það er búið að vera nóg að gera. Amma Hilla og afi Örn í heimsókn og við
verið hér og þar. Svo er bara eitthvað búið að taka mikið af myndum, pabbi og mamma bara alveg gleymt því. En hér koma nokkrar!!
Í gær fórum við öll saman í bæinn, þar var mjög gaman. Í dag fórum við svo alla leið niður á Fredriksberg. Í boð til danskrar frænku minnar,
hennar Ninu og mannsins hennar, Sven.
Ég verð nú að gefa öðrum pláss á síðunni minni!!! Hér eru afi Örn, pabbi og amma Hilla við Kongens Nytorv
Í dag fórum við til frænku minnar á Fredriksberg.
Ég var mjög prúður, lék mér á gólfinu á meðan allir borðuðu, svaf svo í vagninum!
Kominn heim. Hér með ömmu Hillu.
Hæ hó jibbí jei...það er kominn 17. júní!!!!!!!
Kyssa mömmu til hamingju með þjóðhátíðardaginn!!!
...ekki annað hægt en að leyfa pabba að vera með!