Sveit í lok apríl
![]()
![]()
![]()


Sigurður með fallega gimbur undan Álfmóru


Ástþór Örn og hrúturinn Hreinn

Og Arnaldur Kári og Sprækur. Þessir hrútar hafa náttúrlega ekkert að gera svona í sauðburði nema stilla sér upp á myndum!!!

Arnaldur Kári og Mía sem var óborin þegar við vorum í sveitinni

Aftur á móti bar hún Mimla tveimur hrútum, Arnaldur Kári nefndi þá strax, Snúður heitir sá hvíti og Pjakkur sá svarti

Bestla bar tveimur fallegum hrútum á meðan við vorum í sveitinni

Ástþór Örn að fá að halda á lambi - hann fær seint leið á því!

Arnaldur Kári fékk aðeins að knúsa eitt líka!

Lengsta sápukúla í heimi?! Vindurinn hjálpaði vel til við sápukúlugerðina.

Og það var gaman að fylgjast með sápukúlunum feykjast lengst niður móana og út í næstu sveit!!
xxx
Það var enn svolítill vetur og þeim bræðrum þótti ekki leiðinlegt að renna sér niður þessa snjóbrekku
Og ekki er leiðinlegra að hoppa í polla

Ástþór Örn að lesa úr áttavitanum sínum
Við rötuðum nú samt í gönguferð og hlustuðum á hvern vorboðann á fætur öðrum láta vita af sér, það var notalegt.

Vorkomunni fagnað með heimagerðum íspinnum að hætti Ástþórs Arnar :)
![]()
![]()
![]()