Páskar
í sveitinni




-
Jæja,
eitthvað hefur verið hljótt á bræðrasíðunni
undan farna mánuði. Ekki svo að skilja að við höfum
ekki gert margt skemmtilegt!
-
Ég
lofa nú engu um framhaldið enda er ég búin að
vera með miklar hugmyndir um alls kyns breytingar og þess háttar
sem mér reynist flóknara að framkvæma! Æ,
það er stundum svo ágætt að hafa hlutina bara
eins og þeir hafa virkað!! En á forsíðunni má
sjá slóð inn á instagramsíðuna
okkar, þar er nú uppfært reglulega...stundum oft
á dag!! Hér eru nokkrar páskamyndir úr sveitinni.
Þar áttum við afskaplega notalega daga, úti og inni.

Eins og oftast byrjuðum við
á að kíkja í fjárhúsin...Arnaldur Kári
mátti engan tíma missa!!

-
Allar hressar
þar. Það er nú ekki svona þröngt á
þeim venjulega, þær urðu aðeins að láta
sér þetta lynda
-
á meðan
Sigurður hreinsaði undan grindunum hinum megin í húsinu!

Þessi hjálparkokkur
kom líka sterkur inn í vorhreingerningunni!

Og þessi ekki síðri!

Sveitastrákar!

-
Sprækur
á von á þó nokkrum afkvæmum í vor
en núna var nokkuð rólegt hjá honum og
-
hann
hafði fátt annað að gera en að stilla sér
upp á mynd!


Þessir tveir
eru farnir að hlakka mjög mikið til sauðburðarins og vonast
til að ná nokkrum dögum í sveitinni þá

Vorum ákaflega heppin með
veður í sveitinni og hægt að vera mikið úti
við

Leikið í snjónum
sem eftir er

Sums staðar hafði skafið
í myndarlega skafla og þar var hægt að grafa holur og
hella

-
Það
hefur þó nokkuð gengið á hjá okkur mæðginum
undan farið svo ekki sé meira sagt. Ég er að baksa
-
í ökklameiðslum
og Ástþór Örn fótbraut sig svo fyrir nokkrum
vikum. Hann fór í gifs en er laus við það og
-
allt virðist
gróa hratt og vel...betur en hjá mömmu hans í
það minnsta. Hann Arnaldur Kári var svo óheppinn
-
karlgreyið
og fékk myndarlegt gat á ennið sem er að gróa.
Pant ekki fara á slysó næstu árin...hvorki sjálf
né með nokkurn annan.

Sæll í snjónum!


Vorengill í sveitinni

Slappað af í snjóbyrgi


Vor og vetur saman í sveitinni

Þessi herra naut veðurblíðunnar
eins og við hin

Seljafellið og fallegt páskaveður

-
Á páskadagsmorgun
var svo að sjálfsögðu komið að ratleiknum.
-
Arnaldur Kári
hóf leikinn og hefur þarna áttað sig á einni
vísbendingu!

Laxinn hans afa varð að
fá að geyma eina vísbendingu í ár sem og þau
fyrri!

Leitin endaði í spila-myndaskápnum!

Alsæll súkkulaðiunnandi
með eggið sitt

Og þá var næsta
umferð hafin!

-
Ástþór
Örn fór um allt hús og var hér næstum því
búinn að láta eina
-
vísbendingu
sem falin var á veiðihattinum hans afa fram hjá sér
fara!!

-
En allt hafðist
þetta að lokum og lakkríseggið sem búið
er að láta sig dreyma um í svolítinn tíma
-
komið í
hendurnar á honum!!

-
Súkkulaði-páskagleði!

-
Sjálf
fékk ég egg...mamma mín tók tillit til fótameins
og lét mig ekki leita.
-
En
ég veit ekki nema að þessi útskriftarungi hafi eitthvað
átt að tala til mín...
-
í
það minnsta tók ég það til mín
að meira að segja páskaunginn væri kominn með gráðuna!!

-
Amma Kata og
afi Ástþór gefa þessum herrum súkkulaðiegg
og við foreldrarnir höfum því haft þann
-
háttinn
á að gefa pappaegg með glaðningi, oftar en ekki má
þar finna smá LEGO, spil eða þess háttar...já
og málshætti!

Í páskagöngu

Ástþór Örn
ekki alveg að ná uppstillingunni!

Niður við á var enn
nokkuð vetrarlegt en þarna verða farnir að stökkva laxar
áður en allt of langt um líður


Hafið það öll
sem best!



