Desember eins og hann leggur sig!

 

  1. Desember næstum búið...já og árið! Það sem þetta líður. Jólastrákurinn okkar orðinn fimm ára og sá stóri næstum 10 ára!! Eitthvað er nú sjaldan orðið uppfært hér og ég veit ekki hvort það eru margir að lesa, það væri svo sannarlega gaman að heyra af því...bendi á Gestabókina!!
  2. En hér eru myndir sem voru teknar í desember. Sumar eru nú úr símunum og gæðin því ekkert frábær...aðrar úr heimavélinni og gæðin því ekkert æðisleg og enn aðrar úr afavél og þær eru fínar! En hér kennir ýmissa grasa, jólaundirbúningur, árleg aðventuferð í Húsdýragarðin með jólamyndatöku í kaupbæti, afmæli og sjálf jólin!

Hér var bakað svolítið í desember og hér er Ástþór Örn að raða sínum uppáhalds í box, lakkrístoppum

 

Þegar piparkökur bakast!

 

  1. Við mæðgin drifum okkur á Hálsatorgið í Kópavoginum þegar kveikt var á jólatrénu sem var (eins og fyrri ár) gjöf frá vinabæ Kópavogs í Svíþjóð
  2. Arnaldur Kári var nú með okkur þarna! Við skruppum svo líka ásamt Margréti frænku á Austurvöll þegar ljósin á Óslóartrénu voru tendruð...myndavélin var bara alls ekki á því að leyfa ykkur eitthvað að njóta þeirrar stundar!

Tréð var virkilega fallegt og lýsti vel upp í hug og hjörtum í myrkrinu í byrjun desember

 

Svo voru skorin út laufabrauð. Við erum nú ekki alveg komin svo langt að fletja þau út sjálf...það verður bara seinna!

 

 

Á meðan við skárum skreytti Arnaldur Kári piparkökur...Ástþór Örn tók syrpur með báðum liðum

 

xxx

  1. Í desember fórum við svo og sáum danssýningu í skólanum hjá Ástþóri Erni. Við höfðum náttúrlega alltaf vitað að hann væri rosa flottur
  2. en hann kom okkur samt á óvart með mjög góðum danstöktum.

 

  1. Alveg frá því hann Arnaldur Kári byrjaði á leikskólanum hef ég næstum kviðið þessari stundu...helgileiknum.
  2. Nú af hverju? Það þýðir að leikskóladvölinni lýkur senn þar sem elstu börnin sjá um helgileikinn.
  3. Þau voru svo fín öll og litli engillinn okkar stóð sig vel...þrátt fyrir að þverneita því að bera geislabaug!

 

Kakó og notalegheit á þriðja í aðventu!

 

 

  1. Og þann 19. desember varð Arnaldur Kári 5 ára. Hann hélt heljarinnar veislu fyrir vini af leikskólanum nokkrum dögum á undan og
  2. var því svolítið ruglaður í nokkra daga...hvort hann væri orðinn fimm eða ekki! En þegar 19. desember komst þetta allt á hreint með
  3. morgunkaffi, afmælispökkum, söng og afmælisknúsum!

 

xxxx

Upp úr pökkunum komu fallegir hlutir sem hittu vel í mark. Frá Guðrúnu og fjölskyldu í Svíþjóð risaeðlubók og lítil ægilega sæt risaeðla sem hitti svo sannarlega í mark hjá þessum risaeðluáhugamanni. Frá stóra bróður kom angry birds bangsi og Skrímslabók og frá okkur foreldrunum fékk hann riddara Playmo

 

Þessi yndislegi afmælisherra tók á móti mér í leikskólanum síðar um daginn

 

  1. Það litu svo nokkrir gestir inn, hér er Ástþór Örn að lesa kortið frá afa Ástþóri og ömmu Kötu.
  2. Á bak við pappírinn var Angry Birds-spil sem vakti mikla kátínu en þessir fuglar hafa slegið í gegn hér
  3. hjá þessum bræðrum eins og ansi mörgum skilst mér! Hér er hann Björn vinur hans Ástþórs með á myndinni
  4. en hann var hér í heimsókn og tók að sjálfsögðu þátt í gleðinni.

 

  1. Ég var stoppuð á leiðinni inn í stofu með kökuna og bent á að það ættu að vera fimm kerti á kökunni - ég hafði bara sett þrjú!
  2. Eitt augnablik var ég alveg á því að ég ætti dúllu sem væri ekki deginum eldri en þriggja ára...

 

Blásið á kertin FIMM!!!

 

 

  1. Við höfum haft það fyrir sið í mörg ár að skreppa í heimsókn í Húsdýragarðinn á aðventunni. Þar er svo róleg stemmning og
  2. notalegt að heilsa upp á dýrin. Í þetta skiptið var ég ekkert allt of vinsæl kannski hjá þeim bræðrum því ég bað um að fá að
  3. taka nokkrar myndir af þeim í leiðinni. Afi Ástþór lánaði mér vélina sína og ég náði að smella af þó nokkrum myndum.
  4. Á tímabili var ég fegin hve fáir voru á ferli þar sem myndatakan gekk vægast sagt frekar illa og ég var farin að spá hvort ég væri rosalega vond
  5. ef ég setti sem skilyrði að ég færi í garðinn EF ég næði góðri mynd!! En svo mikil Soffía frænka var ég nú ekki og ég treysti á að eitthvað væri nú fínt og við drifum okkur að heilsa upp á dýrin!

 

  1. Þegar heim var komið og ég hafði rennt yfir myndirnar nokkrum sinnum skildi ég nú ekki hvað ég var að spá!
  2. Þeir voru svo sætir á öllum myndunum að ég hefði aðeins mátt slaka á þarna fyrr um daginn!!

 

Þetta er aðalmyndapósan hjá Arnaldi Kára þessa dagana!

 

 

  1. Rosa hressar aliendur tóku á móti okkur...þó heldur móðgaðar yfir því að við værum ekki með neitt
  2. handa þeim nema góðar kveðjur!

 

Selirnir alltaf vinsælir

 

Æ, elsku stúfurinn minn var hér að reyna að gleðja mædda móður með myndabrosi!!

 

Ég reyndi að selja þeim bræðrum þá hugmynd að þeir myndu sjá til þess að ég fengi þennan í jólagjöf!

 

Þeir voru frekar á því að ég ætti að fá geit

 

Við höfðum aldrei áður séð hænur sitjandi uppi í tré...en þið???

 

  1. Á leiðinni í bílinn ákvað ég nú að vera aðeins "hressa mamman" og leyfa þeim að stilla sér upp bara alveg
  2. eins og þeir vildu á nokkrum myndum og hér eru tvö sýnishorn!

 

 

  1. Og þá...náði ég þessari sem mér fannst fallegust og hefur kannski borist
  2. einhverjum lesendum í jólakorti!

 

 

Og þá komu jólin yndislegu

 

Afi Ástþór og amma Kata borðuðu með okkur og nutu aðfangadagskvöldsins með okkur

 

Ástþór Örn spilaði nokkur jólalög áður en við borðuðum

 

Jólatréð fannst mér bara alveg fullkomið í ár

 

  1. Ein af okkur mæðginum...annars sé ég að myndavélarnar urðu
  2. eitthvað út undan á þessu notalega kvöldi

 

  1. Þessi var nú fyndnastur! Alsæll með njósnaragleraugu frá Baldri Tuma, Huga og Maríu í Svíþjóð (slógu alveg í gegn enda þeim eiginleikum gædd að maður getur séð
  2. aftur fyrir sig með þeim!), míkrfóninn frá Þórdísi frænku og fjölskyldu og í Angry Birds hettupeysunni frá Áslaugu, Klaus og Margréti. Hann fékk einmitt líka Angry Birds bol frá vinum sínum í Svíþjóð sem hann segist ætla að "vera alltaf í" í leikskólanum hér eftir!!

 

Hér höfum við svo átt náttfata-leti-leik-lesdaga út í eitt eiginlega, alveg eins og það á að vera!

 

  1. Ástþór Örn var svo farinn að kvíða því nokkuð að það myndi ekki koma snjór fyrr en eftir að skólinn byrjaði aftur,
  2. hann varð því alsæll þegar fór að snjóa.

 

 

  1. Við Arnaldur Kári skemmtum okkur líka nokkuð vel í snjónum í gær...það var öllu vera að fóta sig
  2. í dag þegar allt hafði frosið.

 

Við vonum að þið hafið átt yndisleg jól og að þið kveðjið árið sæl. Megi nýja árið bera ykkur gæfu og hamingju.