Nokkrir nóvemberdagar í snjó!

 

  1. Nóvember rúmlega hálfnaður og rétt mánuður í að Arnaldur Kári verði fimm ára! Við skiljum ekkert okkar í því hvað tíminn flýgur. Allt gott að frétta af okkur en eitthvað höfum við verið löt að taka upp myndavélina í mánuðinum. Hér eru þó nokkrar myndir, flestar teknar í gær og í dag í snjónum sem gladdi þá bræður mjög!

  1. Þessir bræður hafa verið hressir og kátir í nóvember!
  2. Nóg að gera í skólanum, leikskólanum, tónlist og auk þess hefur verið farið í nokkur
  3. afmæli og fleira skemmtilegt!

 

Í gær var svo hvít jörð þegar við vöknuðum og eftir hádegi var rölt í brekkuna hér rétt hjá

 

Og í dag fórum við í langan göngutúr...

 

...en byrjuðum í brekkunni!

 

Þeir bræður skemmtu sér konunglega

 

 

Svo var farið í göngutúr

 

Sætur strákur með eplakinnar

 

  1. Þegar komið var heim úr göngutúrnum fengust þeir bræður
  2. inn að borða hádegismat en voru svo fljótir að koma sér út að leika aftur.

 

xx

Ég rölti svo með þeim í brekkuna í fallegu vetrarveðrinu en hér blés ekki eins og svo víða um land

 

  1. Það var ansi erfitt að ná mynd af Arnaldi Kára á ferð...þar sem ég þurfti líka vera bremsa
  2. fyrir hann neðst í brekkunni!!

 

 

Þeir bræður fóru saman nokkrar salibunur

 

  1. Þegar heim var komið hituðum við kakó og Ástþór Örn hélt fund um sleðamál heimilisins sem hann
  2. vill meina að séu í algjörum ólestri! Það er því spurning hvort að eitthvað þurfi að gera í því og fara svo
  3. að biðja um snjó...meiri snjó!