Notaleg hrekkjavaka
-
Hrekkjavaka
á kannski ekki að vera notaleg!! En það var hún
hjá okkur enda erum við örugglega að þverbrjóta
allar hryllingsreglur og hefðir hvað daginn varðar!! Alla vega
héldum við hér smá hrekkjavöku um helgina
þrátt fyrir að strangt til tekið sé hún
ekki fyrr en á mikðvikudaginn. Þeir bræður urðu
ægilega glaðir yfir því þar sem þeir
höfðu þá ríka ástæðu til að
leyfa hrekkjavökuskrauti að vera áfram í einhverja
daga! Hér eru nokkrar myndir.
Það
gleymdist alveg að taka myndir á meðan útskurði stóð
- ég kom ekki nærri þetta árið
enda miklu íhaldssamari
þegar kemur að því að skera út...en það
er ágætt að breyta stundum til líka!

Ástþór Örn stórgrínari

Eftir hádegið drifum við okkur
út í göngutúr áður en hrekkjavakan hófst
formlega hjá okkur

Þið eruð sjálfsagt farin
að kannast við hringinn sem við löbbum gjarnan

Laufin svo fallega æðaber svona hrímuð

Arnaldur Kári var aðeins of annars
hugar til að nást almennilega með á þessa mynd

En hér tókst það!

Og jú mikið rétt...gubburóló!

Þegar heim var komið var kveikt upp
í graskerinu

Og þá
byrjaði ballið. Hér var farið í búningakistuna
til að finna eitthvað í tilefni dagsins.
Ástþór
Örn hafði þó keypt þessa hanska sérstaklega
fyrir hrekkjavökuna í ár...
þið
hefðuð átt að sjá svipinn á starfsmanninum
í búðinni þegar Ástþór Örn
spurði hann hvort að það væru
ekki til svona
gamaldags brynglófar!!!!!!!! Gotneskir miðaldahanskar voru til sem
komust mjög nálægt hugmynd Ástþórs Arnar!!!
Ég lagði mikinn metnað
í búninginn í ár...eða aðallega karakterinn
en það sést því
miður ekki á myndinni!!!!!

Hrekkjavökumuffins brögðuðust
ljómandi vel!

Kakan í ár - varúlfur

Allt að verða klárt

Graskerið varð voða rómantískt
þegar birtu tók að halla
Má hér til með
að láta fylgja heimagerðar skreytingar! Arnaldur Kári
er mjög
áhugasamur um að skrifa.
Núna er hann hættur að vilja skrifa stafi sem ekki mynda sérstök
orð
og því erum við
voða mikið að stafa hér fyrir hann. Hann er þó
ansi fljótur að læra orðin finnst okkur og hér
fengu allir afhentan skreyttan
miða þar sem á stóð Hrekkjavaka.

Ástþór Örn hélt
sig við útlenskuna í sínum skreytingum!
Vona að október kveðji
ykkur á góðum nótum og sjálf vonast ég
eftir því að nóvember verði með löngum
og góðum dögum (ég þarfnast þess í
það minnsta!). Gleðilega hrekkjavöku 31. október
og þann 1. nóvember er svo Allra heilagra messa. Þann dag
kenndi hann afi minn Jói mér á, þá er fallegt
að staldra aðeins við og minnas látinna sála um
leið og við þökkum fyrir lífið sjálft.
Hafið það öll sem best!