Sveitasæla í október

  1. Við drifum okkur loksins í sveitina um helgina. Veðurguðirnir voru okkur svo sannarlega hliðhollir því þrátt fyrir að það væri svolítið kalt var svo stillt og yndislegt haustveður að við reyndum að vera sem mest úti við. Langflestar myndirnar eru því af haustblíðunni og okkur að njóta hennar!

 

Snemma á laugardagsmorgninum dreif ég mig í göngutúr...og þá saknaði ég vinkvenna minna úr
dömugöngufélaginu, Pílu og Trýnu (sem var ekki í sveitinni í þetta skiptið).

 

Trén hafa mörg náð að halda vel í laufin

 

Niður við ána

 

Straumfjarðará falleg í haustinu

 

Þegar hér var komið við sögu var ég ekki lengur ein á göngu og fékk eina mynd af mér við ána!

 

Oft hef ég talað um að gott sé að vindur myndist ekki svo vel en oh, ég væri alveg til í að hauststillan
sem við nutum næðist á mynd!

 

Veturinn að taka yfir haustið

 

 

 

 

 

Við röltum og heilsuðum upp á Hnotu og tvær merar sem eru nýkomnar í Dal, þær
Dögun (þá til vinstri) og Víólu (fyrir miðju).

 

Hnota fór fyrir hópnum en hinar voru þó forvitnar um okkur og leyfðu okkur að klappa sér svolítið

 

Næst var förinni heitið í veiðihúsið. Arnaldur Kári var ægilega glaður að
geimflaug ætti leið þarna hjá...þetta var nefnilega ekki þota eins og við hin héldum!

 

Á meðan við Sigurður vorum að stússast í hinu og þessu í húsinu dundaði Arnaldur Kári sér til dæmis
við að teikna hákarla og önnur sjávardýr...sem eru alltaf í jafn miklu uppáhaldi.

 

Svo var leikið aðeins úti, til dæmis voru þeir bræður hér búnir að byggja Camelot-kastala úr ískristöllum!!

 

Síðar um daginn var rölt...já og hlaupið heim í Dal

 

Þeir bræður á milli trjána sem eru farin að skýla okkur nokkuð vel í sveitinni

 

Hann Ríkharður Charles Henri okkar var alsæll með að komast á sveitasetur sitt!

 

Við hin glöddumst í vöfflukaffi :)

Og kvöldsólin var falleg, sem og stjörnuskinið um kvöldið. Við náðum að sjá landslagið á tunglinu
í kíki og nokkrar ansi bjartar stjörnur. Ég gerði svo tilraunir til að sjá loftsteinadrífu Óríonítar sem náði hámarki
aðfararnótt sunnudags og var búin að búa mig undir mikil læti með fullt af halastjörnum og látum. Ég var því á fótum svolítið þessa nótt og
ég er ekki frá því að ég hafi nú eitthvað séð...nema ég hafi bara verið svo þreytt að ég hafi verið að sjá ofsjónir...þó að það hafi kannski ekki verið
alveg eins tilkomumikið og NASA hafði lofað mér! Mér finnst samt stjörnubjartur himinninn í sveitinni alltaf jafn ævintýralegur og ekki spillti fyrir
að aðeins sást af norðurljósum.

 

Sunnudagurinn var líka fallegur. Við Sigurður Ágúst börðumst aðeins við pípulagnir í Dal og ég féll
á öllum prófum sem aðstoðarmaður...úff...en veit núna hvar kaldavatnsinntakið er og hvernig á ekki að bera sig að við
klósett sem leikur gosbrunn og fleira!

 

xxx

Eftir þau ævintýri var um að gera að skella sér út í göngutúr áður en haldið yrði aftur heim

 

Gaman að leika sér að ísnum sem myndast hafði á pollunum

 

 

 

 

Sigurður Ágúst að stússast eitthvað á meðan ég dundaði mér við að mynda
þá bræður og eitthvað annað...

 

...til dæmis fallin lauf!