Októberdagar

Kominn október!
Það sem tíminn líður. Allt fínt af okkur
að frétta, nóg að gera hjá öllum. Nokkrir
myndir frá blálokum septembermánaðar og upphafi október.
Aðallega teknar á róló hér og þar!

-
Í lok
september kom hann Snúlli í helgarheimsókn til Arnaldar
Kára. Snúlli fær að heimsækja
-
elstu börnin
á leikskólanum heim og fær svo ævintýri
sín skráð í dagbók. Ástþór
Örn fékk Snúlla tvisvar heim þegar hann
-
var á
Álfaheiði, það er svolítið gaman að
rifja upp þegar hann kom haustið
2008 og í júní
2009. Það þurfti
-
líka
eiginlega að minna Ástþór Örn á það
hver væri aðalgestgjafinn að þessu sinni!!

-
Arnaldur Kári las eða
öllu heldur fór með nokkrar skrímslabækur fyrir
Snúlla og Brand...
-
hann kann þær
flestar utan að!

Svo kom afi Ástþór
í heimsókn og við drifum hann og Snúlla í göngutúr
í haustblíðunni

Arnaldur Kári klifurköttur
á ferð

Reyniberin biðja mann alltaf
jafn fallega að taka af sér mynd!

Spáð og spekúlerað
í trjám
-
Arnaldur Kári reynir
oft að fara í kapp við Ástþór Örn
þegar
-
hann er á hjólinu...það
endar stundum svolítið illa.

-
Það þurfti
að sjálfsögðu að sýna afa gubburóló
og rifja upp með Snúlla sem sagðist hafa komið þarna
-
oft áður.

Ég held að hann Arnaldur
Kári gæti rólað allan daginn!

Gljámispillinn í fallegum
haustbúningi

-
Við fórum á
Gulleyjuna með afa og ömmu í Langa um daginn.
-
Arnaldur Kári vildi
endilega fá að fara í sjóræningjabúningi
og var fundinn
-
sjóræningjaleppur
á Snúlla! Við skemmtum okkur vel í leikhúsinu
og áttum að sjálfsögðu
-
flottasta sjóræningjann
í salnum!


-
Við erum svo heppin að
vera búin að fá hana Margréi frænku þeirra
feðga (mér finnst að ég eigi bara líka að
fá
-
að kalla hana frænku
mína!) til Íslands. Hún ætlar að vera hér
í vetur og við eigum vonandi eftir að sjá hana
-
sem oftast. Og hvaða stað
haldiði að þeir bræður hafi endilega viljað
sýna henni...jú að sjálfsögðu gubburóló!

Frændsystkinin að róla

Og við mæðgin á
ferðinni líka

Náði svo þessum
fínu haustmyndum af þeim


Þeim frændum leiðist
ekki að fá þessa skemmtilegu frænku í heimsókn


Í dag skruppum við Arnaldur
Kári í smá leiðangur á meðan Ástþór
Örn skellti sér í myndlist

-
Arnaldur Kári á
Klambratúni með Hallgrímskirkju í baksýn..."þar
sem Baldur Tumi var skírður"...en því bætir
-
Arnaldur Kári alltaf
við þegar kirkjan fallega blasir við!


Rennt og klifrað

-
Og farið í róluna
frábæru...eða kláfinn! Þið sjáið
þarna borgarstarfsmann
-
slaka svolítið
á í baksýn. Hann lá og svaf þegar við
komum og Arnaldur Kári
-
spurði hann hvort að
það væri ekki allt í lagi hjá honum...við
þá athugasemd fór
-
hann að ditta að einhverju
í svona þrjár mínútur en lagði sig
svo bara aftur þar til
-
einhver borgarbíll
kom og sótti hann! Æ, það er líka svo notalegt
að liggja og láta haustsólina
-
kyssa sig!!
-
Við mæðgin skiptumst
á að fara salibunur og skemmtum okkur konunglega
-
(Margrét! Þetta
er næsti áfangastaður þegar þú kemur
til okkar!!!!)
-
Áður en við
sóttum Ástþór Örn náðum við
að kíkja á afmælisbarn dagsins,
-
þennan tvítuga
páfagauk sem tók á móti gestum í Húsdýragarðinum
í tilefni dagsins.
-
Hann heilsaði okkur og
lék á alls oddi.

Sápukúlurnar alltaf vinsælar

-
Hænurnar voru ansi slakar
í dag og röltu sér þarna um allt.
-
Sumar voru komnar ansi nálægt
refagirðingunni og spóluðu þá upp í sinni
girðingu!
-
Okkur Arnaldi Kára
fannst rétt mátulegt á þá þegar
þeir sá svo á eftir þeim til baka í átt
-
að sínum heimkynnum
í garðinum.