Göngutúr í haustblíðu
![]()
![]()
![]()
Ekki hægt að láta annan mánuð líða án þess að uppfæra bræðrasíðuna. Hér er allt komið á fullt eftir sumarið í sveitinni. Þeir bræður hressir og kátir með skóla og leikskóla auk þess sem Ástþór Örn er kominn á fullt í tómstundir. Skruppum í göngutúr um Elliðaárdalinn í dag í góða veðrinu. Það er passlega langt þangað svo að ástæða sé til að hita smá kakó og taka með nesti!

Svo var hlaupið inn í skóg


Við mæðgin stilltum okkur upp á skógarstígnum


Haustið farið að lita birkilaufin

Kakópása! Alveg nauðsynleg eftir alla gönguna.

Brauðið og kakókið rann ljúflega niður
xxx
Feðgar um haust

Og ein ekta haustmynd í lokin með bestu kveðjum frá okkur!