
Hér
eru nokkrar sveitamyndir til viðbótar. Höfum ýmislegt
"dandúsað" eins og Arnaldur Kári myndi segja! Farið
að veiða, gróðursett og alls konar. Nú fer sveitalífinu
að ljúka í bili, sumarið alveg rokið áfram.
Búið að vera ansi fínt veður, sól og hlýtt,
utan nokkra "haustdaga" um daginn þegar við fengum heldur
mikinn blástur. En það er ótrúlegt hvað tíminn
hefur liðið, fer að koma tími á berjamó og
ekkert svo langt í að kindurnar verði sóttar á
fjall ef út í það er farið.
Við
fengum fréttir af heimalningnum okkar henni Fjöður sem var hér
fram á sumar en fór þá í vist með öðrum
heimalningum á nágrannabæ. Hún hefur víst
braggast ansi vel og erum við farin að hlakka til að sjá
hana. Hún var nú held ég líka orðin pattaralegri
í byrjun júní en mörg þeirra lamba sem maður
sér hér með mæðrum sínum á ferðinni...enda
var farið að kalla hana lakkrísrúllu!!! Helstu dýrafréttir
eru svo þær að hún Píla okkar kvaddi okkur, varð
hvíldinni örugglega fegin enda verið mikið lasin frá
því í sumarbyrjun. Hún var rétt tæplega
tólf og hálfs árs sem er nú nokkuð hár
aldur hjá labradortík. Við Trýna verðum því
að halda uppi merkjum í dömugöngutúrunum sem hafa
verið farnir ansi margir fram að þessu!
Hafið
það öll sem best, takk fyrir kveðjurnar - okkur finnst voða
gaman að lesa þær!
-
Hér
rigndi svolítið um daginn hjá okkur...sem betur fer verð
ég nú að segja þar sem allt var orðið ansi
þurrt.
-
Sigurður
kepptist við að slá hér heima við og Arnaldur
Kári lék sér úti alsæll. Þennan
flotta bláa bíl fékk hann frá afa Erni og ömmu
Hillu og hefur bíllinn
-
fengið
að keyra þó nokkra metrana ef ekki kílómetra
hér í sumar!
-
Hér
hafa heilmargir plöntubakkar tæmst og telst mér til að
það hafi farið niður tæplega
-
fimmhundruð
bakkaplöntur; greni, fura, selja og nokkrar tegundir af reyni.
-
Og
haldiði ekki að berin séu að verða tilbúin.
Þeir bræður
-
tíndu
fullan dall af bláberjum fyrir ömmu Kötu um daginn

Aðalbláberin
sums staðar alveg tilbúin

Og ég hef tínt
svolítið af jurtum í te og þurrkað

Til að mynda er ég
búin að tína svolítið af maríustakk

-
Og
vallhumli sem bragðast bara eins og hunang í teið! Enn einnig
öðrum jurtum sem eru
-
nauðsynlegar
í teblöndu vetrarins.
Skruppum að veiða um
daginn. Afi hér búinn að setja í lax sem tók
flugu sem heitir Blue Rat

Náðist á land
og Arnaldur Kári alsæll yfir þessu
Sjálf setti ég
svo í þennan lax á fluguna Munro Killer

Ástþór Örn
náði þessari mynd af mér í all svakalegum Wathne-systrastíl!!!!!

-
Ástþór
Örn og afi ætluðu að landa einum í sameiningu
sem afi setti í en ekki fór betur en svo að
-
laxinn
sleit línuna og hirti fínu Blue Rat fluguna sem afi hafði
hnýtt fyrir tuttugu árum en allt of sjaldan notað!

Allir kátir eftir
frábæra stund við ána


Við skruppum í
"piknik" á svo fallegan stað hér stutt frá
okkur

Verið að setja
frá einhverju mjög fyndnu og stórmerkilegu sýnist
mér!!

Vorum með gott nesti
og höfðum það notalegt í laut og hlustuðum á
fossaniðinn


Stuðið að
byrja hjá þeim bræðrum!

Elliðatindarnir
og sumarhiminninn

Svo fengu nú
stígvélin og sokkarnir fljótlega að fjúka

...og buxurnar hans
Ástþórs Arnar


-
Arnaldur
Kári skemmti sér alveg konunglega enda var þetta alveg
-
svakalegt
ævintýri fyrir þennan annars fremur jarðbundna herra!!

Tábergið
og tærnar hans Ástþórs Arnar!

Litli ljúflingur!

Og sá stóri!

Sigurður lét
sér nægja að fara úr skónum og sokkunum!

Ég sá
um að taka myndir...í skóm og sokkabuxum!

-
Við
höfum oft farið fram hjá þessum stað á
hestbaki og alltaf talað um að
-
við
yrðum að koma með nesti og stoppa svolítið og njóta
hans, sem við drifum loksins í!


Þúfutittlingur
leikur listir sínar fyrir mig


Við Arnaldur Kári
skruppum í smá göngutúr í dag og þá
náði ég þessari fínu mynd
-
Þessi
dreymni lubbi dreif sig aftur á móti á hestbak til
að hjálpa til við að reka svolítið af kindum
á fjall
-
sem
hafa verið að gera okkur lífið leitt undan farið
og hangið hér í kring og laumast til að éta
tré og vera með leiðindi



Mér finnst þessi syrpa af býflugunni
á leið úr blómi í blóm skemmtileg

Merkur og Arnaldur Kári



-
-
Ekki
má svo gleyma trjámyndunum í ár. Ég hef
haft þann siðinn að taka myndir af þeim bræðrum
-
við
ákveðin birkitré einu sinni á ári. Það
er gaman að skrásetja hvað trén vaxa en ekki síður
hvað afleggjararnir tveir stækka hratt!
-
Hér
má sjá syrpurnar þeirra bræðra!
-
Arnaldur
Kári við birkitréð sitt í ár. Tréð
hans hafði nú orðið fyrir smá áfalli í
öllum snjónum í vetur
-
en
okkur sýnist það alveg ætla að spjara sig. Aftur
á móti þarf ég kannski að breyta aðeins
sjónarhorninu svo
-
að
trð falli ekki svona inn í skjólbeltin á bak við

Arnaldur Kári
2011

2010

og sú fyrsta
sem var tekin árið 2009

Ástþór
Örn við birkitréð sitt nú í sumar
xxx
2011
xxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxx
2010
xxx
2009
xxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxx2008
xxx
2007xxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxx2006

-
Ég
hef hvergi fundið myndina frá 2005 en hér er sú
fyrsta sem var tekin við tréð árið 2004...
-
ég
á hálf bágt með að trúa því
að þessi sé sá sami og í smekkbuxunum svolítið
ofar!!!

Og hér tvær í lokin úr
sumarblíðu að kvöldlagi í sveitinni

