Sumar og sól í sveitinni!

xx x x x x x x x

 

Hér koma nokkrar myndir úr sveitinni sem hafa verið teknar undan farið. Við höfum haft nóg að gera og oft hefur nú myndavélin alveg orðið út undan. En það er aldrei að vita nema ég fari að muna oftar eftir henni og við getum uppfært fljótlega.

 

Um daginn skruppum við með afa Ástþóri niður í Sökkur og freistuðum þess að ná í bleikju í soðið

 

Á leiðinni niður eftir rákumst við meðal annars á þessa önnum köfnu andamömmu með 7 unga að passa

 

Við Arnaldur Kári létum fara vel um okkur á bakkanum og fylgdumst með afa reyna sig í ánni

 

Og þá fór eitthvað að gerast og spennan óx og óx!

 

  1. Á land kom þessi væni sjóbirtingur, sem féll fyrir heimasætunni (flugunni sko!)
  2. Hann var borðaður af bestu lyst daginn eftir, í möndluhjúp með nýjum kartöflum og eðalhvítvíni

 

Ástþór Örn æfði aðeins köstin sín og freistaði þess að ná öðrum fiski á land

 

 

Svo fínir bræður í veiðiferð

 

Trýna skottaðist með okkur í veiðinni

 

Mjög glaðir á heimleið úr veiði

 

Álftapar með ungana sína fimm

 

Og stór og myndarleg tjaldafjölskylda

 

Hér á tröppunum stilla Maríuerlurnar sér svo upp alveg eftir pöntun!

 

Og það gerir þessi sæti sumarstrákur líka

 

Já og þessi líka!!

 

Arnaldur Kári passar upp á Frakk

 

Arnaldur Kári er venjulega ekkert sérstaklega mikið fyrir að láta mynda sig en hefur verið í öðrum
gír upp á síðkastið og ég hef því gripið tækifærið og er búin að ná svolítið af voða fínum myndum
af þessum gimsteini mínum

 

 

 

Aðalmálið er að hafa Pílu og Trýnu með á myndum!!

 

xxxx

Mér finnst þessi syrpa svo vel heppnuð og sæt

 

Þessi var svo tekin í kvöld þegar við vorum hér úti í smá hestastússi

 

Neisti "in detail" og þarna má sjá hann Ástþór Örn líka

 

 

Litli bóndastrákurinn á ferðinni

 

  1. Við að planta. Í ár erum við með meira af reyni og selju en undan farin ár. Minna af birki en nokkuð af furu og greni.
  2. Hér verður gaman að rölta um skóg eftir einhver ár!!

 

Hertoginn af Dalsskíri, Ríkharður Charles Henri lætur fara vel um sig í sumarhöllinni sinni

 

  1. Þegar búið er að færa út hjá hrossunum leikur Ástþór Örn sér að því að fara í kapphlaup við þau út
  2. úr gerðinu!

 

  1. Þó að við elskum sumarkvöld eins og þetta þá myndum við nú alveg þola örfáa rigningardropa eitthvað á næstunni...
  2. úff frekja er þetta í manni!!

 

xx x x x x x x x